Sexy Ranea Crabtree ásamt eiginmanni sínum. Sheila var 987. vinsælasta nafn Bandaríkjanna árið 2009. Sexy komst ekki inn á topp 1.000.
Sexy Ranea Crabtree ásamt eiginmanni sínum. Sheila var 987. vinsælasta nafn Bandaríkjanna árið 2009. Sexy komst ekki inn á topp 1.000.
Sheila Ranea Crabtree, gekk á fund dómara í vikunni og breytti nafni sínu í Sexy Ranea Crabtree. Eftir smáumhugsun samþykkti dómarinn, Robert Hoover, nafnbreytinguna.

Sheila Ranea Crabtree, gekk á fund dómara í vikunni og breytti nafni sínu í Sexy Ranea Crabtree. Eftir smáumhugsun samþykkti dómarinn, Robert Hoover, nafnbreytinguna.

Sexy, sem er tveggja barna móðir, á tvær unglingsstelpur, sagði við CNN-fréttastofuna að hún hefði alltaf hatað Sheilu-nafnið og þá gengi hún alltaf í nærfötum frá Victoriu Secret. Sexy lá því beinast við. „Fjölskyldan mín og vinir hafa sýnt þessari ákvörðun mikinn skilning. Ég er mjög opinn persónuleiki og finnst gaman að lífinu. En ég þoldi ekki nafnið mitt og fannst kominn tími að breyta því,“ sagði Sexy en hún hafði valið úr þremur nöfnum; Sparkle og Sinder komu einnig til greina. Sexy varð hinsvegar fyrir valinu.

Internetið var fljótt að taka við sér og varð Sexy, fljótlega eftir að dómarinn hafði veitt henni nafnið, skotspónn húmorista víða um heim. Hún sá sum ummæli um sig en var bara alveg sama hvað heiminum finnst. Hún er ánægð og það skipti mestu. „Loksins er ég laus við þetta ljóta nafn og get brosað framan í heiminn,“ sagði Sexy Ranea Crabtree.