Skyrið fæst í öllum verslunum í Finnlandi og þess er neytt af öllum hópum þó konur séu í meirihluta og fólk á aldrinum 25 ára til 55 ára.
Skyrið fæst í öllum verslunum í Finnlandi og þess er neytt af öllum hópum þó konur séu í meirihluta og fólk á aldrinum 25 ára til 55 ára. „Í byrjun horfðum við á ákveðinn markhóp, íþróttamenn og fitnessfólk því það er þeim eðlilegt að sækja í prótein en forðast fitu og kaloríur. Við unnum með þessum hópum í um ár og einbeittum okkur að konum því þær hugsa meira hvað þær borða og vilja hafa matinn bragðgóðan. Við vorum alltaf með árstíðabundna sölu sem fylgdi að mestu leyti æfingartímabilunum, eftir áramót og á haustin þegar fólk fer að taka sig á. Á síðasta ári var salan ekki árstíðabundin í fyrsta skipti, núna eru bara allir að borða skyr,“ segja þeir.