Guðni Jónsson fæddist í Skarðshlíð í Austur-Eyjafjallahreppi 24. september 1927. Hann lést á dvalarheimilinu Lundi 18. febrúar 2014.
Foreldrar hans voru Jón Hjörleifsson, f. 12.7. 1898, d. 23.7. 1973 og Guðrún Sveinsdóttir, f. 25.8. 1897, d. 15.5. 1983. Systkini hans eru: Sveinn, f. 30.6. 1924, d. 30.5. 1983. Hjörleifur, f. 28.9. 1925, d. 7.5. 2011. Tómas, f. 25.4. 1929, d. 1.8. 1998. Sigríður, f. 27.11. 1932. Anna, f. 5.8. 1936, d. 23.3. 2007. Hilmar Eyjólfur, f. 15.11. 1938 og Jakob Óskar, f. 28.10. 1940. Guðni kvæntist Þórunni Jónasdóttur 1. apríl 1950. Hún var fædd 27. september 1931 og lést 24. desember 2012. Foreldrar hennar voru Ágústa Þorkelsdóttir, f. 19.8. 1896, d. 30.6. 1974 og Jónas Kristjánsson, f. 19.5. 1894, d. 4.12. 1941. Dætur Þórunnar og Guðna voru Hrafnhildur, f. 3.2. 1949, gift Friðriki Magnússyni, f. 17.2. 1946, Hjördís, f. 29.1. 1950, gift Auðuni Erni Gunnarssyni, f. 27.3. 1949 og Bára, f. 18.2. 1951, d. 29.9. 2006. Hún var gift Sighvati Sveinbjörnssyni, f. 21.12. 1953. Börn Hrafnhildar og Friðriks eru Eygló, f. 15.8. 1966 og Friðrik, f. 9.11. 1971. Eygló er gift Runólfi Þór Runólfssyni, f. 14.11. 1961, börn þeirra eru Eyjólfur Darri, f. 27.10. 1990, sambýliskona hans er Hrafnhildur Erla Guðmundsdóttir, f.23.3. 1992, Hrafnhildur Björk, f. 10.4. 1993 og Daníel Guðni, f. 15.5. 1996. Friðrik er giftur Margréti Helgu Theodórsdóttur, f. 16.10. 1975, börn þeirra eru Friðrik Gauti, f. 18.11. 2005 og Atli Freyr, f. 3.8. 2010. Barn Hjördísar og Auðuns er Tinna Ósk, f. 24.8. 1982, gift Fannari Helga Steinssyni, f. 16.5. 1983, börn þeirra eru Aníta Ósk, f. 22.8. 2007, Hjördís María, f. 12.7. 2010 og Fanney Erna, f. 13.7. 2010. Barn Auðuns er Anna Sigrún f. 23.1. 1970, sambýlismaður hennar er Ásgeir Sæmundsson, f. 29.11. 1964, börn þeirra eru Sonja, f. 19.10. 1992 og Ásgerður, f. 18.7. 1997. Börn Báru eru: Kristinn Jón, f. 15.11. 1973, faðir Örn Grétarsson, f. 22.10. 1951. Með Sighvati átti hún Þórunni, f. 13.3. 1979, Guðna, f. 2.5. 1980, Hörð, f. 21.4. 1981 og Sif, f. 17.1. 1988, d. 28. 10. 2003. Kristinn er giftur Sif Sumarliðadóttur, f. 24. 2.1975, börn þeirra eru Salka, f. 16.7. 2005 og Grímur, f. 19.7. 2008. Þórunn er gift Páli Sveinssyni, f. 23.5. 1979, börn þeirra eru Sveinn, f. 24.6. 2009, Sighvatur Gísli, f. 1.12. 2010 og Oddný Bára, f. 13.7. 2012. Barn Guðna er Bára Sif, f. 3.6. 2008, móðir er Drífa Gestsdóttir, f. 17.8. 1981. Sambýliskona Guðna er María Carmen Magnúsdóttir, f. 22.12. 1978. Börn hennar eru Jana Lind Ellertsdóttir, f. 18.10. 2000, Magnús Þór Daníelsson, f. 31.1. 2007 og Arna Daníelsdóttir, f. 13.4. 2008. Hörður er giftur Orapin Tonapun, f. 17.3. 1983.
Þórunn og Guðni hófu sinn búskap á Hellu og byggðu framtíðarheimili sitt að Laufskálum 3. Guðni vann um skeið hjá Kaupfélaginu Þór á Hellu en síðar hóf hann störf hjá Búnaðarbankanum þar sem hann starfaði sem gjaldkeri og aðstoðarmaður bankastjóra lengst af sinni starfsævi þar til hann lét þar af störfum sjötugur að aldri.
Útför Guðna fer fram frá Oddakirkju, Rangárvöllum, í dag, 28. febrúar 2014, kl. 14.
Það var aðfaranótt 18. febrúar að afi minn Guðni kvaddi þennan heim. Margar minningar bærast í huga mér um hann. Hann var allra manna hugljúfastur og trúði á það besta í fólki. Hjá afa og ömmu voru dyrnar ætíð opnar okkur barnabörnunum. Alltaf höfðu þau tíma fyrir okkur, sem og aðra. Þegar mín leið„ lá austur“ fór ég alltaf í heimsókn til þeirra. Það var gott að koma til þeirra, og sátum við saman í eldhúsinu eða í stofunni og spjölluðum saman. Tíminn leið og aldrei skipti máli hvenær maður kom eða hversu lengi maður dvaldi hjá þeim. Þeirra heimili var okkar heimili líka.
Frá því ég man eftir mér höfum við afi notið aðfangadags saman. Þetta var hátíð afa, þar sem hann var mikill matmaður. Hann vildi þá helst borða jólasósuna með skeið, og þegar borðhaldi lauk settist hann í sófann og hneppti nokkrum tölum á skyrtunni, þar sem hún varð orðin dálítið þröng.
Það eru ófáar minningarnar frá Klifi, bústaðnum okkar undir Eyjafjöllum. Þar fannst afa gaman að spila á spil, og þar var mikið gaman. Kímnigáfuna vantaði ekki hjá honum, en honum fannst gaman að stríða okkur aðeins. Hann gat alltaf komið manni til að hlæja. Einnig hafði hann dálæti á að fegra lóðina þar sem bústaðurinn okkar stóð. Þar fór afi fremstur í flokki ásamt ömmu að gróðursetja – og klippa tré eða slá himinhátt grasið.
Það voru ófá skiptin sem ég gisti hjá afa og ömmu og þar var kvöldkaffi fyrir svefninn. Þau áttu líka alltaf til vanillu-ísblóm með súkkulaði og sultu. Það var eitt sem afi þoldi ekki og það voru kettir. Ef hann sá kött í garðinum þá hellti hann yfirleitt fullri fötu af vatni eða sprautaði á þá með vatnsslöngunni þangað til þeir hurfu.
Hann afi minn var hvíldinni feginn. Loksins geta þau amma verið saman á ný. Nú hef ég eignast nýjan verndarengil, sem gætir mín og minna. Þakkir fyrir allt, elsku afi Guðni.
Tinna Ósk
Auðunsdóttir.
Það var alltaf stutt í kímnina hjá afa, sem lét ekkert tækifæri fram hjá sér fara við að grínast í okkur barnabörnunum og síðar börnunum okkar þegar þau komu til skjalanna. Dæmigert tækifæri hjá afa var til dæmis þegar amma var að predika yfir unglingnum á leið á eitthvert sveitaballið: „Gakktu nú hægt um gleðinnar dyr“ var vel þekktur frasi hjá ömmu. Þá tók afi við: „Nei, blessaður, hlauptu bara í gegn, það er miklu skemmtilegra!“ Og svo fylgdi hláturinn sem var svo einkennandi fyrir afa Guðna. En afi Guðni var fyrst og fremst góður maður. Aldrei heyrði ég hann segja styggðaryrði um nokkurn mann og alltaf var hann tilbúinn til að gera gott úr hlutunum. Ef eitthvað bjátaði á var hann fyrsti maðurinn til að reyna að leysa úr vandanum eða að minnsta kosti reyna að létta manni lund með sínu einstaka lagi. Ég kveð afa Guðna með söknuði en um leið óendanlegu þakklæti fyrir þau ár sem við áttum saman.
Kristinn Jón Arnarson.
Hlýlegt var að heyra þessi orð og vita að fleira er mikils virði en námið og bækurnar. Svona var afi. Svo ljúfur og góður og glettinn. Hversu oft hann náði manni upp þegar Liverpool var í sjónvarpinu á Laufskálum 3. Einhvernveginn virtist afi alltaf halda með hinu liðinu og hafði gaman af að gera grín þegar illa gekk. Það varð hefð hjá okkur bræðrum að ganga út á Hellu til afa og ömmu og horfa á enska boltann og þiggja kökur og fleira á laugardögum. Eftir nokkur ár fórum við svo að sjá í gegnum gamla manninn sem hafði af þessum mikið gaman.
Minningarnar eru margar og góðar. Við góðar stundir undir fjöllunum þar sem vísur voru jafnan samdar og farið að keyra út á aurum. Við tókum upp kartöflur í garðinum utan við Hellu og margar góðar stundir sátum við á Breiðöldu 9 að ræða saman. Við erum stolt af afa í bankanum og þangað var gaman að koma þegar telja átti sparipeningana og leggja inn á bók hjá afa, alltaf jafn flottur.
Þungur var harmur þinn þegar amma kvaddi okkur á jólunum fyrir rúmu ári og ég veit að það hefur verið vel tekið á móti þér þegar þú lagðir af stað í þína hinstu för. Eins sárt og það er að missa og sakna þá minnir það okkur á hve gott er að þrá og elska og í hjarta mínu eruð þið saman komin á góðum stað.
Á skilnaðarstund er gott að fara yfir minningar og hugsanir og tileinka sér það besta sem ástvinir skilja eftir sig. Ég þakka afa Guðna fyrir að sýna mér að við skulum sýna ungu fólki virðingu og hlusta á það. Þannig lifir hann í hugum og hjörtum fólks. Ég þakka honum líka fyrir glettnina og stríðnina sem var öll á góðum nótum og færði lífinu lit. Áfram lifir þú í hjarta mér.
Guðni Sighvatsson.
Þegar ég lít til baka þá man ég svo vel eftir Laufskálunum, hliðinu, garðinum, eldhúsinu, bílskúrnum, lyktinni og ekki síst þessu tempói sem ríkti. Reglulegu taktföstu tempói sem kemur aldrei aftur. Afi setti upp hattinn, gekk í vinnuna, kom heim í hádeginu, fékk heitan mat, lagði sig, fór aftur í bankann, kom heim, alltaf á sama tíma. Rás eitt var útvarpið, rólyndislegur lestur frétta, sinfóníutónlist sem öllum leiddist, dægurlög sungin af Ómari Ragnarsyni og Hauki Mortens. Afi sló garðinn á föstudögum og þreif bílinn og bónaði um helgar.
Líklegast hefur verið alveg nóg að gera hjá ömmu og afa en upplifunin var sú að þau hefðu nógan tíma, mér gáfu þau allavega allan þann tíma sem ég þurfti og endalausan kærleika. Afi spilaði við mig þegar ég var lítil og kenndi mér að hjóla, amma las fyrir mig og kenndi mér að lesa. Þegar ég fullorðinn fór að koma mér upp heimili með mínum manni, þá komu þau amma og afi margar ferðir í bæinn með fulla kerru af plöntum. Afi fór í skítagallann, tók fram réttu verkfærin og gróðursetti þolinmóður undir verkstjórn ömmu. Ég er ekki viss um að honum hafi fundist gaman í garðvinnunni eins og ömmu fannst, en honum fannst gott að geta gert eitthvað fyrir fólkið sitt og tíma sinn gaf hann aftur og aftur örlátlega.
Það eru einhvernveginn litlu hlutirnir sem koma upp í hugann þegar ég minnist afa við ferðalok. Hvernig hann fór alltaf fyrstur á fætur, lyktin af kaffi og camel, hljóðin í rakvélinni og fréttunum í útvarpinu. Þegar við Lulli gistum með krakkana okkar, þá opnaði hann hæversklega inn til okkar um leið og heyrðist í ungunum og fór með þau fram, leyfði okkur að sofa. Nú er komið að honum að fá að sofa, hvíldin verður kærkomin eftir erfið veikindi. Ég hef samt á tilfinningunni að hann verði farinn að vakna fyrstur á himnum innan skamms og augun hans glettin og góðleg munu vaka yfir okkur á ný.
Eygló Friðriksdóttir.
Guðni minn, viltu biðja hana Tótu að skila dúllunni sem hún heklaði handa mér, hún hvarf nefnilega daginn sem hún dó.
Guðrún Jóna.
Hann lagði alltaf gott til allra mála og gerði sér sérstakt far um að sjá spaugilegu hliðarnar á öllum málum. Sagði sögur af körlum og kerlingum úr sveitinni sem fengu mann til að veltast um af hlátri. Til dæmis söguna af konunum á biðstofunni hjá lækninum sem voru að spjalla saman og sagði önnur: „Þegar ég geng þá gapir hún, og þegar ég sest þá lokast hún. Og þegar ég geng aftur – þá gapir hún aftur.“ Og þá stoppaði Guðni og horfði á okkur og sagði svo: „Hún var sko að lýsa nýju kápunni sinni.“ Og við emjuðum af hlátri.
Starfsfólk bankans fór á árshátíðir til Reykjavíkur og við fórum í útilegur í Þórsmörk og Þjórsárdal – þetta var svo gaman, alveg ógleymanlegt; og Guðni alltaf góða sálin í hópnum.
Seinna þegar hann hafði lokið störfum og þau Tóta voru flutt austur á sand og búin að koma sér fyrir, þá heimsótti ég þau stundum. Og það var eins og áður, við drukkum úr nokkrum kaffibollum og sögðum sögur og hlógum. Og þegar ég kvaddi, þá mundu þau einmitt eftir birkiplöntu eða reynivið sem hafði sáð sér í potti hjá þeim og hvort ég gæti nú ekki komið henni niður einhvers staðar hjá mér. Þau voru höfðingjar heim að sækja og snyrtimennskan allsráðandi utanhúss og innan. Garðurinn þeirra á Laufskálum 3 var margverðlaunaður og sjálfsagt líka á Breiðöldunni. Guðni sagði mér einhvern tíma frá því hvernig þau Tóta skiptu með sér verkum í garðinum. Hann sló grasið en hún hirti um beðin. „En svo gerði ég bara beð úr öllum grasflötunum, þá þarf ég ekkert að gera,“ sagði hann og hló.
Og núna er hann Guðni okkar dáinn. Hann var orðinn þreyttur og sjálfsagt orðinn hvíldinni feginn. Ég er full gleði yfir því að hafa átt hann að vini og vinnufélaga í mörg ár en það er söknuður í hjartanu. Ég votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð og kveð góðan mann hinstu kveðju.
Sigríður S. Jónasdóttir.
Ég kynntist Guðna í byrjun árs 1971, þegar ég kom til starfa í Búnaðarbankanum á Hellu, kvíðin og feimin og þekkti ekki marga Rangæinga. Ég fékk sæti við hlið Guðna, hann var góður leiðbeinandi og sagði mér deili á flestum sem inn komu og fylgdu oft skemmtilegar sögur. Ég held að hann hafi þekkt flesta Rangæinga á þeim tíma og örugglega alla sem voru sjálfstæðismenn. Guðni var glettinn og skemmtilegur, og sem samstarfsmaður var hann samviskusamur, nákvæmur og einstaklega vinsæll af viðskiptavinum bankans, jafnt börnum sem fullorðnum.
Ég vann við hlið Guðna í 27 ár og ég minnist þess ekki að fallið hafi styggðaryrði okkar á milli allan þann tíma. Guðni var einstakt snyrtimenni, alltaf fínn og strokinn, bíllinn alltaf gljábónaður og garðurinn sá fallegasti í þorpinu, en þar átti hún Tóta nú stóran hlut að máli.
Minningarnar eru margar, sem tengjast Guðna og Tótu, þau voru mér góðir vinir frá fyrstu tíð, sem og dætur þeirra og fjölskyldur. Fyrir þetta er þakkað í dag. Við Svavar sendum fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur.
Guðni minn, þú varst alltaf mesti höfðinginn.
Jóhanna.
Í hugum flestra viðskiptavina var Guðni bankinn og bankinn Guðni. Það örlar enn á þessu viðhorfi hjá eldri viðskiptavinum og stundum er haft á orði að tölvurnar í dag séu ekkert hraðvirkari en hann var einn á sínum tíma. Þetta má stundum til sanns vegar færa þegar tækni nútímans klikkar. Þegar breytingar urðu í afgreiðslu og tölvurnar tóku yfir var Guðni mjög flinkur að tileinka sér tæknina.
Það voru mörg viðvikin sem Guðni einn sá um án þess að eftir væri tekið. Má þar nefna snjómokstur, að fáninn væri klár, opnað á réttum tíma, dagsetningin rétt og að henda ruslinu í lok dags. Samviskusemin var svo mikil að eitt sinn fór hann með ruslið heim, gleymdi sem sagt að setja það í tunnuna við bankann. Hann var glettinn og stríðinn en alltaf á góðlátan hátt svo enginn varð sár þó gantast væri. Það hefur sjálfsagt ekki alltaf verið auðvelt að vera lengst af eini karlmaðurinn á gólfinu með allan þennan kvennaskara, og reyna að hafa stjórn á okkur svo við misstum okkur ekki í blaðri. Þetta fórst honum vel úr hendi eins og flest sem hann tók sér fyrir hendur. Okkur leið afskaplega vel saman. Við áttum margar gleðistundir í vinnunni og utan hennar, með mökum okkar í bæjarferðum og öðrum viðburðum. Það besta sem við gátum gert ef haldið var upp á eitthvað, var að baka pönnsur, það var algjört uppáhald hjá Guðna. Seint verður fullþakkað að hafa átt hann sem vinnufélaga í svo mörg ár. Guðni var bankamaður af guðsnáð.
Þegar Guðni lét af störfum var hans sárt saknað af öllum, bæði starfsmönnum og viðskiptavinunum sem áttu stundum erfitt með að treysta okkur konunum til að gera hlutina eins vel og hann hafði gert. Guðni var töluglöggur með afbrigðum, mundi öll númer og var fljótur að finna út ef eitthvað fór úrskeiðis og sjá hvar vandinn lá. Þetta reyndum við að tileinka okkur eftir megni og megum við þakka leiðsögn hans í því. Svo stóð upp á okkur að passa litlu hlutina sem hann hafði þegjandi og hljóðalaust sinnt eins og áður var sagt.
Síðustu árin hjá Guðna hafa verið strembin og sennilega er hann hvíldinni feginn. Honum hefur verið vel fagnað á endurfundi við ástvini sína, sem horfnir eru á braut. Hann lést á afmælisdegi Báru dóttur sinnar. Að leiðarlokum viljum við þakka yndislega samveru og samvinnu í bankanum og votta fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Megi minningin um góðan dreng lifa með okkur öllum um langa framtíð.
F.h. samstarfsfólks úr Búnaðarbankanum á Hellu,
Erna og Helga.