Ragnheiður Elín Árnadóttir
Ragnheiður Elín Árnadóttir
Undanfarnar vikur hafa nokkrir landeigendur stigið fram og kynnt áætlanir sínar um að hefja gjaldtöku við nokkrar af náttúruperlum landsins.

Undanfarnar vikur hafa nokkrir landeigendur stigið fram og kynnt áætlanir sínar um að hefja gjaldtöku við nokkrar af náttúruperlum landsins. „Slík vinnubrögð eru með öllu óviðunandi og fordæmir stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) þá leið sem þarna er farin,“ segir í tilkynningu.

Samtökin hafa boðað til félagsfundar um málið í dag kl. 8.30 í Borgartúni 35, þar sem ráðherra ferðmála, Ragnheiður Elín Árnadóttir verður sérstakur gestur. Á fundinum verður farið yfir ástand og horfur í ferðaþjónustunni. Rætt verður um fyrirhugaða gjaldtöku og umdeildar hugmyndir um innrukkun á fjölsótta ferðamannastaði í sumar, eins og segir í fundarboði.

„Samtök ferðaþjónustunnar SAF hafa ávallt lagt áherslu á að við útfærslu á gjaldtöku sé horft til heildarhagsmuna ferðaþjónustunnar, hvort heldur verið er að meta möguleika til gjaldtöku eða við útfærslu á uppbyggingu ferðamannastaða. Þá verður líka að tryggja að þær tekjur sem af gjaldtökunni verða skili sér örugglega að fullu til áframhaldandi uppbyggingar ferðamannastaða víðs vegar um landið,“ segir í tilkynningu frá SAF.

Þar segir ennfremur að nú liggi fyrir að iðnaðar- og viðskiptaráðherra muni um mánaðamótin kynna útfærslur að heildstæðri lausn hvað varðar fjármögnun til uppbyggingar

ferðamannastaða. Telja samtökin mikilvægt að horft sé til slíkra

heildarlausna frekar en farið verði af stað með staðbundnar lausnir.

Þannig séu heildarhagsmunir einnar stærstu og mest vaxandi atvinnugreinar landsins best tryggðir.

Þurfi góðan fyrirvara

Þá vilji SAF ítreka enn og aftur mikilvægi þess að allar kröfur um gjaldtöku þurfi að liggja fyrir með góðum fyrirvara þar sem sala til erlendra ferðaheildsala eigi sér stað langt fram í tímann. Tímabundinn vanda væri t.a.m. hægt að leysa með valkvæðum greiðslum ferðamanna.

Eitt stærsta ferðamannasumar sögunnar sé handan hornsins og því skipti öllu máli að aðilar innan greinarinnar sæki á miðin í sátt og samlyndi.