Hagnaður af rekstri Íslenskra verðbréfa hf. árið 2013 nam 138 milljónum króna. Félagið hefur skilað hagnaði óslitið frá árinu 2002, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá Íslenskum verðbréfum.
Eigið fé félagsins nam 591 milljónum króna í árslok 2013 og eiginfjárhlutfall, reiknað samkvæmt 84. grein laga um fjármálafyrirtæki, var í árslok 35,5%. Íslensk verðbréf hafa ávallt verið á lista Creditinfo yfir fyrirmyndarfyrirtæki.
Sveinn Torfi Pálsson, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir í tilkynningunni: „Ég er ánægður með afkomu félagsins á árinu 2013 og yfirstandandi ár leggst vel í mig. Eignir í stýringu námu 112 milljörðum króna í árslok og ávöxtun eignasafna í umsjá félagsins var með besta móti.“