Við Snæfellsnes Vel gekk hjá skipverjum á Lundey NS síðdegis á miðvikudaginn. Þeir köstuðu þrisvar og fengu um þúsund tonn. Fjær má sjá Álsey VE.
Við Snæfellsnes Vel gekk hjá skipverjum á Lundey NS síðdegis á miðvikudaginn. Þeir köstuðu þrisvar og fengu um þúsund tonn. Fjær má sjá Álsey VE. — Ljósmynd/Börkur Kjartansson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Loðnuskipin hafa síðustu daga verið að veiðum á norðanverðum Faxaflóa og voru þau í gær um 14 mílur suðvestur af Malarrifi.

Loðnuskipin hafa síðustu daga verið að veiðum á norðanverðum Faxaflóa og voru þau í gær um 14 mílur suðvestur af Malarrifi. Veiðar hafa gengið ágætlega, en mest hefur verið veitt úr einni þéttri torfu og hafa skipin ekki öll getað athafnað sig á sama tíma. Loðna er trúlega jafnframt gengin inn í Breiðafjörð, en veður hefur komið í veg að hægt hafi verið að kanna miðin þar.

Kappkostað er að nýta loðnuhrognin sem allra best og eru þau fryst víða um land, m.a. í Reykjanesbæ, á Akranesi, í Vestmannaeyjum, á Vopnafirði og um borð í vinnsluskipunum. Loðnan drepst að mestu að lokinni hrygningu, en útgerðarmaður sem talað var við í gær sagði erfitt að segja fyrir um hversu mikið væri eftir af vertíðinni. Ekki sé óalgengt að botninn detti úr veiðunum um miðjan mars, en engar tvær vertíðir séu eins. Þá sé líklegt að enn eigi nokkuð af loðnu eftir að ganga inn í Faxaflóa og Breiðafjörð. aij@mbl.is

Fjölgar úr fimmtán í fimmtíu

• Loðnuvertíðin hefur í för með sér mikla atvinnu hjá Saltveri • Færri sem komast að en vilja • Framleiðsluferlið hefst í Helguvík og lýkur í Njarðvíkum • Saltver fjölskyldufyrirtæki í 50 ár Stefán Gunnar Sveinsson

sgs@mbl.is

„Þetta er mjög atvinnuskapandi,“ segir Guðmundur J. Guðmundsson, framleiðslustjóri Saltvers í Reykjanesbæ, um vinnslu loðnuhrogna. „Vanalega erum við hérna með saltfiskvinnslu og tæplega fimmtán manns í vinnu. Þegar loðnan skellur á erum við hins vegar með tæplega fimmtíu, fyrir utan iðnaðarmenn og allt annað sem er í kringum þetta,“ segir Guðmundur og bætir við að Saltver hafi verið rótgróið fjölskyldufyrirtæki í um hálfa öld.

Vinnsla hrognanna fer fram á tveimur stöðum hjá Saltveri. Loðnunni er landað í Helguvík, þar sem hún er skorin, hrognin skilin frá og hreinsuð áður en þau eru sett í kör. „Þau kör eru flutt til okkar í Njarðvík og eru látin standa í tólf og allt að 24 tíma eftir því hvað þau eru þroskuð.“ Eftir það er þeim pakkað inn og fryst til útflutnings.

Loðnuvertíðin stendur í um það bil mánuð og eru það mikið til nemar sem stökkva til í vinnu meðfram skóla, og leggja þeir hart að sér. Guðmundur segir vaktirnar hjá skólafólkinu langar. „Þessir krakkar eru ótrúlega duglegir. Þeir koma hingað um kl. sjö á kvöldin og fara ekki fyrr en um kl. sex á morgnana, og þeir geta haft mikið út úr þessu,“ segir Guðmundur.

Það eru þó ekki bara nemar sem sækja vinnu í tengslum við hrognavinnsluna. „Það er fullt af fólki sem kemur hingað annars staðar frá og tekur þetta sem aukavinnu, og það eru færri sem komast að en vilja,“ segir Guðmundur að lokum.