Sigríður Auður Arnardóttir
Sigríður Auður Arnardóttir
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur veitt Stefáni Thors, ráðuneytisstjóra í umhverfis- og auðlindaráðuneyti, námsleyfi frá störfum sínum í ráðuneytinu að hans ósk til eins árs frá 1. mars nk.

Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu umhverfis og skipulags í ráðuneytinu, hefur frá sama tíma verið sett í embætti ráðuneytisstjóra til eins árs.

Sigríður Auður er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað í ráðuneytinu frá árinu 1998 og gegnt starfi skrifstofustjóra frá árinu 2003, á skrifstofu laga og upplýsingamála, laga og stjórnsýslu og síðast á skrifstofu umhverfis og skipulags. Sigríður Auður hefur verið staðgengill ráðuneytisstjóra frá 2007 og var settur ráðuneytisstjóri um tveggja mánaða skeið árið 2013.