Ábyrgð Gestir skoða kúluskít í Náttúrufræðistofu Kópavogs sem er ein þeirra stofnana sem fá viðurkenningu samkvæmt nýjum safnalögum.
Ábyrgð Gestir skoða kúluskít í Náttúrufræðistofu Kópavogs sem er ein þeirra stofnana sem fá viðurkenningu samkvæmt nýjum safnalögum. — Morgunblaðið/Sverrir
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur í fyrsta skipti að tillögu safnaráðs veitt 39 menningarminja-, náttúru- og listasöfnum viðurkenningu samkvæmt nýjum safnalögum.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur í fyrsta skipti að tillögu safnaráðs veitt 39 menningarminja-, náttúru- og listasöfnum viðurkenningu samkvæmt nýjum safnalögum.

Markmiðið með viðurkenningu safna er að taka af öll tvímæli um stöðu þeirra, skyldur og samfélagslega ábyrgð.

Meðal skilyrða fyrir viðurkenningu er að eigandi safnsins tryggi safninu fjárhagsgrundvöll fyrir eðlilega starfsemi, að safnið starfi eftir stofnskrá, skrái safnkost sinn í gagnagrunn sem uppfyllir skilmála safnaráðs og standist öryggiskröfur ráðsins. Sömuleiðis eru gerðar kröfur um menntun eða hæfni forstöðumanns, að safnið sinni faglegu starfi og taki á móti skólanemum án endurgjalds.

Þessi söfn hlutu viðurkenningu: byggðasöfn Árnesinga, Borgarfjarðar, Hafnarfjarðar, Húnvetninga og Strandamanna, Reykjanesbæjar, Skagfirðinga, Snæfellinga og Hnappdæla; byggðasöfnin Görðum, Hvoll og í Skógum; Flugsafn Íslands, Gljúfrasteinn – hús skáldsins; Grasagarður Reykjavíkur; Hafnarborg; Heimilisiðnaðarsafnið; Hönnunarsafn Íslands, Landbúnaðarsafn Íslands; listasöfn ASÍ, Árnesinga, Kópavogs-Gerðarsafn, Reykjanesbæjar, og Reykjavíkur; Ljósmyndasafn Reykjavíkur, menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Þingeyinga; minjasöfn Austurlands, Egils Ólafssonar, Reykjavíkur og á Akureyri; Náttúrufræðistofa Kópavogs; Nýlistasafnið; Sagnheimar; Síldarminjasafn Íslands; Sæheimar; Tónlistarsafn Íslands; Tækniminjasafn Austurlands og Víkin.