Trausti Jónsson fæddist 8. ágúst 1930. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 14. febrúar 2014. Útför Trausta fór fram 21. febrúar 2014.

Kæri Trausti

Okkar innilegustu þakkir fyrir allar heimsóknirnar, gleðina og góðvildina gegnum áratugina. Ferðin góða sem þið hjónin buðuð okkur í á Snæfellsnesið geymist í minningasjóði gleðinnar.

Minning þín er mér ei gleymd,

mína sál þú gladdir.

Innst í hjarta hún er geymd,

þú heilsaðir mér og kvaddir.

(Káinn)

Elsku Ella, hjartans samúðarkveðjur til ykkar allra.

Lilja og Ingólfur,

Drangshlíðardal.