Hluthafafundur í Vinnslustöðinni hf. samþykkti í gær að fela stjórn Vinnslustöðvarinnar (VSV) að hefja formlegar viðræður um sameiningu VSV og Ufsabergs-útgerðar ehf.

Hluthafafundur í Vinnslustöðinni hf. samþykkti í gær að fela stjórn Vinnslustöðvarinnar (VSV) að hefja formlegar viðræður um sameiningu VSV og Ufsabergs-útgerðar ehf. Meirihluti eigenda VSV samþykkti sameiningu þessara félaga á hluthafafundi síðla árs 2012 en í mars 2013 dæmdi Hæstiréttur Íslands samrunann ógildan að kröfu Stillu útgerðar ehf., KG fiskverkunar ehf. og Guðmundar Kristjánssonar, sem eru í eigendahópi VSV. Fulltrúar þessara hluthafa lögðust gegn tillögu um nýjar sameiningarviðræður á hluthafafundinum í gær.

Þá samþykkti fundurinn að kaupa nær 93% hlut í fyrirtækinu Eyjaís ehf., sem framleiðir ís fyrir skip og báta við Vestmannaeyjahöfn. Efni kaupsamnings er að öðru leyti trúnaðarmál, segir í tilkynningu frá Vinnslustöðinni.

Stjórnarformaður VSV greindi hluthöfum frá ákvörðun stjórnar félagsins um að stækka frystigeymslu VSV á Eiðinu. Geymslurýmið tekur nú um 4.000 tonn af frystum sjávarafurðum en mun meira en tvöfaldast að stærð með framkvæmdunum sem hefjast að öllum líkindum í sumar. Stækkun frystigeymslunnar er í samræmi við þá breyttu stefnu VSV að halda birgðir sínar af frystum afurðum hér heima frekar en erlendis. Sú ráðstöfun er til hagræðingar og sparnaðar þegar til lengri tíma er litið.

Á fundinum kom fram að Vinnslustöðin mun innan tíðar efna til lokaðrar samkeppni arkitekta og verkfræðinga um skipulag á athafnasvæði sínu með það fyrir augum að reisa þar nýtt frystihús fyrir uppsjávarafurðir.

Framtíðarskipulag á hafnarsvæði

Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar, fagnaði því á fundinum að náðst hefði samkomulag Vestmannaeyjabæjar, Vinnslustöðvarinnar og Ísfélags Vestmannaeyja um framtíðarskipulag hafnarsvæðisins í Eyjum.

„Þar er kveðið á um að bæjaryfirvöld láti vinna nýtt deili- og aðalskipulag fyrir hafnarsvæðið með auknu athafnarými að sunnanverðu í botni Friðarhafnar. Ísfélagið lætur rífa hús sitt að Strandvegi 36 og Vinnslustöðin lætur rífa austurhús Fiskiðjunnar. Fyrirtækin afhenda bænum síðan báðar lóðir án kvaða,“ segir í tilkynningunni.