Alls voru gefin út 3.432 íslensk vegabréf í seinasta mánuði samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands og voru þau rúmlega eitt þúsund fleiri en í sama mánuði í fyrra. Í frétt á vefsíðu Þjóðskrár segir að 2.

Alls voru gefin út 3.432 íslensk vegabréf í seinasta mánuði samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands og voru þau rúmlega eitt þúsund fleiri en í sama mánuði í fyrra. Í frétt á vefsíðu Þjóðskrár segir að 2.423 vegabréf hafi verið gefin út í janúar 2013 og hafi útgefnum vegabréfum því fjölgað um 41,6% milli ára.

Þau svör fengust hjá Þjóðskrá í gær að starfsmenn vissu ekki um neinar sérstakar ástæður fyrir þessari aukningu. Fjöldi útgefinna vegabréfa í janúar var líka mun meiri en í desembermánuði þegar gefin voru út 2.553 vegabréf og fjölgunin er líka mikil ef miðað er við janúarmánuð sl. þrjú ár.