Anna Guðný Ólafsdóttir fæddist á Fjöllum í Kelduhverfi 5. desember 1930. Hún lést 8. mars 2014 á Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri.

Foreldrar hennar voru hjónin Ólafur Jónsson, bóndi á Fjöllum, f. 21.11. 1881, d. 19.5. 1953, og Friðný Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, f. 31.8. 1898, d. 27.5. 1999.

Anna var yngst fimm systkina en þau voru Héðinn, f. 14.1. 1918, d. 16.7. 1992, Ragnheiður, f. 23.8. 1920, d. 23.6. 2002, Jón, f. 1.1. 1925, og Jóhanna, f. 4.2. 1927.

Anna giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Friðriki J. Jónssyni, f. 5.10. 1918, frá Sandfellshaga í Öxarfirði, hinn 9.7. 1949. Foreldrar Friðriks voru hjónin Jón Sigurðsson, f. 17.12. 1884, bóndi í Sandfellshaga, d. 1.2. 1971, og Kristín Helga Friðriksdóttir, f. 11.8. 1881, d. 2.4. 1970. Börn þeirra eru: 1) Árni V., f. 20.11. 1949, framkv.stj. Raftákns, kvæntur Gerði Jónsdóttur, f. 18.11. 1950, börn þeirra: a) Jón Heiðar, f. 4.8. 1967, rafmagnstæknifr., maki hans Guðrún Þ. Þórðardóttir, f. 29.11. 1966, börn þeirra: Gerður, nemi í Danmörku, f. 2.2. 1997, Óttar, nemi, f. 9.4. 1992, og Þórdís, nemi, f. 19.3. 1997, b) Anna Kolbrún, f. 16.4. 1970, menntunarfr., sambýlismaður Jón Bragi Gunnarsson, f. 18.5. 1960, barn Önnu Kolbrúnar Þóra Aldís, f. 6.6. 1997, c) Katrín, f. 22.4. 1980, MS í fjölmiðlafræði, búsett í Berlín, maki Anton Rúnarsson, f. 25.8. 1980, barn þeirra Elín Karlotta, f. 19.10. 2012. 2) Ólafur, f. 5.6. 1953, skrifst.stj. í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, kvæntur Freyju Tryggvadóttur, f. 4.3. 1957, börn þeirra: a) Friðrik Ingi, f. 30.4. 1977, flugmaður. Börn hans Magnús Óli, f. 3.7. 2004, og Fannar Ingi, f. 3.7. 2010, b) Anna Guðný, f. 16.12. 1980, grunnskólakennari, gift Eyþóri Sverrissyni, f. 29.3. 1977, börn þeirra Elvar Freyr, f. 25.8. 2007, Arnar Ingi, f. 16.7. 2010, og Sara, f. 17.7. 2013, c) Íris Ösp, f. 6.5. 1989, BS í sálfræði. 3) Kristín Helga, f. 26.4. 1962, bankastarfsmaður, börn hennar a) Baldur, f. 6.4. 1983, blaðamaður, sambýliskona Hulda Ösp Atladóttir, f. 27.8. 1987, barn þeirra Emil Daði, f. 26.6. 2010, b) Lilja f. 20.4. 1985, óperusöngkona, búsett í Vín, sambýlismaður Bjarni Thor Kristinsson, f. 2.5. 1967, c) Andri, f. 22.6. 1991, nemi.

Anna ólst upp í foreldrahúsum á Fjöllum en fór á unglingsaldri til vinnu á Hótel Húsavík og síðar á Hótel Akureyri. Eftir að hún giftist stofnaði hún heimili með manni sínum í Ási við Kópasker en Friðrik hafði ráðið sig til Kaupfélags Norður-Þingeyinga (KNÞ) sem bílstjóri 1944. Friðrik og Anna bjuggu í 11 ár í Ási en byggðu svo húsið Sunnufell á Kópaskeri og fluttu þangað í nóvember 1960. Auk húsmóðurstarfa vann hún ýmis störf svo sem á Hóteli KNÞ, rækjuverksmiðju og á Sláturhúsi KNÞ á Kópaskeri, meðal annars sem kjötmatsmaður. Anna söng lengi í kirkjukór Snartarstaðakirkju og var félagi í kvenfélaginu Stjörnunni á Kópaskeri. Árið 2000 fluttu Anna og Friðrik til Akureyrar og bjuggu sér heimili í Lindasíðu 4. Þar tóku þau virkan þátt í starfi eldri borgara. Árið 2012 flutti Anna á hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð og Friðrik flutti til hennar hálfu ári seinna.

Anna Guðný verður jarðsungin frá Glerárkirkju á Akureyri í dag, föstudaginn 14. mars, kl. 10.30.

Elskulega amma mín, ég á margar góðar minningar frá stundunum í Sunnufelli. Fyrstu minningarnar sem koma upp í hugann eru stundirnar í eldhúsinu, ilmur af bakstri og matargerð. Fleiri myndir koma líka upp í hugann; blómin í jógúrtdósunum í gluggakistunni, Rafha-eldavélin, hnífaparaskúffan og stóru silfurskeiðarnar. Spilastokkurinn átti sinn stað á borðinu, við gripum oft í spil og ég lærði að leggja kapal. Eldhúsið var hlýtt og notalegt. Hjá ömmu var alltaf tvíréttað enda lærði ég að borða allan mat, slíkt var úrvalið. Kaffitímarnir voru líka sérkapítuli. Ástarpungarnir, rúgbrauðið, kæfan, mysingurinn, pönnukökurnar, saftin og sulturnar, allt heimalagað að sjálfsögðu. Kræsingar. Á kvöldin var svo kvöldkaffið, ekki síðra en sortirnar lítið færri. Hjá ömmu var ekki aðeins eitt búr heldur voru þau tvö, hitt var kalda geymslan og ég gleymdi mér oft við það eitt að skoða það sem hillurnar höfðu að geyma. Vatnið var líka best úr krananum í þvottahúsinu.

Amma kenndi mér að tína fjallagrös, ég fór með henni að sækja egg og við fórum í berjamó. Ég meira að segja lærði bæði að synda og hjóla í Sunnufelli. Í minningunni var alltaf gott veður, ég man að ég fékk gamla hjólið og hjólaði oft yfir túnið, niður í búðina eða niður á bryggju. Það var nefnilega gaman að hjóla yfir túnið, það var stórt og það voru í það minnsta tveir troðningar sem gengu þvert yfir það og þess vegna skemmtilegt að hossast yfir þá á hjólinu. Rykið þyrlaðist upp. Það var líka gott að vera undir vegg og sólin skein þar sem við lágum og flugurnar létu vita af sér. Stundum var hægt að fá rabarbara til að dýfa í sykur, það var toppurinn. Eldliljurnar á sínum stað undir stofuglugganum og stjúpurnar í beðinu í kringum fánastöngina.

Ég las heilmikið í Sunnufelli, þar voru margar bækur. Ég las meira að segja ævisögur enda þannig bækur í boði. En ég las líka Úrval spjaldanna á milli. Amma var hlý og góð.

Ég veit núna að það eru litlu hlutirnir sem skipta máli og ég er þakklát fyrir að amma kenndi mér að meta þá þó svo að ég hafi ekki fyrr en löngu seinna áttað mig á því. Ég þakka ömmu fyrir allar góðu stundirnar og ég veit hún er enn með okkur.

Anna Kolbrún Árnadóttir.

Elsku amma. Ég hef verið ótrúlega heppinn að eiga ykkur afa að öll þessi ár. Hjá ykkur leið mér eins og heima því í Sunnufelli var að finna takmarkalausa hlýju og ró. Þú áttir ætíð eitthvert góðgæti fyrir lítinn dreng í eldhússkápunum þínum; brenni eða rauðan brjóstsykur eða jafnvel gómsætt Sodastream úr búrinu. Til ykkar afa var alltaf gott að koma, hvort sem það var á Kópaskeri eða hin síðari ár á Akureyri. Það er ekki nokkur leið að hafa tölu á því hversu oft ég kom til ykkar á laugardögum í grjónagraut og súrt slátur. Þar var iðulega hlegið.

Takk, elsku amma, fyrir allar góðu stundirnar í gegn um árin. Það er ekki sjálfgefið að eiga ömmur og afa í fleirtölu í meira en 30 ár. Ég er þakklátur fyrir hverja stund sem við áttum saman. Þær dásamlegu minningar geymi ég í hjarta mér alla ævi.

Baldur.

Elsku amma mín. Það var nú margt sem við brölluðum saman og svo ótal margt sem þú kenndir mér. Eldhúsið í Sunnufelli var svo hlýr staður og í minningunni varstu alltaf með sandköku, ástarpunga (líka án rúsína fyrir mig) og kleinur þegar ég leit inn til ykkar afa til að leggja kapal og spjalla á endalausum sumardögum æskunnar. Í búrinu inn af eldhúsinu og í kalda búrinu frammi leyndist alls konar góðgæti í krukkum og kistan var alltaf full enda skorti ekki á myndarskapinn hjá þér. Það sem ég elskaði matinn í þessu eldhúsi og hlýja nærveru þína. Þú varst svona ekta amma, kenndir mér að prjóna og sauma í, mála á dúka og koddaver, dytta að blómum og snúa upp á kleinur.

Þegar ég var orðin eldri kom ég oft til ykkar á Akureyri til að fá hjálp við saumaskap, lita á þér augabrýrnar eða bara til að hitta ykkur afa og auðvitað eldaðirðu uppáhaldsmatinn minn, kjöt í karríi. Á náttborðinu hér hjá mér í Vínarborg liggur dúkur sem þú saumaðir og við máluðum saman kisu á þegar ég var barn. Ég held að þetta sé eini skrautmunurinn sem ég tók með mér þegar ég flutti frá Íslandi, það er svo gott að hafa þig hjá mér.

Elsku amma, ég er svo lánsöm að hafa kynnst þér og mikið finnst mér erfitt að geta ekki fylgt þér hinsta spölinn.

Þín

Lilja.

Við lát svilkonu minnar Önnu Ólafsdóttur hrannast upp minningar um allar ánægjustundirnar sem við hjónin áttum með henni, Friðriki mági og þremur börnum þeirra í Sunnufelli á Kópaskeri. Sérstaklega eftirminnileg er fyrsta heimsókn þessarar lífsglöðu konu til okkar. Það var síðsumars árið 1952 og ég held að það hafi verið fyrsta koma hennar til höfuðborgarinnar. Húsfreyjur norðan úr landi með börn og bú ferðuðust ekki daglega til Reykjavíkur. Ég vildi náttúrlega sýna henni sitthvað merkilegt í höfuðborginni og fórum við í Þjóðminjasafnið. Næstum lifandi vaxmyndir vöktu sérstaka kátínu Önnu og henni fannst hinn merkilegi maður Napóleon keisari vera ótrúlega smávaxinn.

Seinna varð það næstum árlega að við hjónin fórum norður og dvöldum við þá gjarnan hjá Önnu og Friðriki í Sunnufelli, oft með tvö eða þrjú börn með okkur. Þá var farið saman í stuttar eða lengri ferðir í héraðinu og skoðaðir ýmsir staðir, jafnvel farið um fjöll og heiðar. Eftirminnilegust er ferðin í Búrfellsheiðina. Allar myndir úr þeirri ferð geymast í huganum því gleymst hafði að setja filmu í vélina. Oft var hlegið að því síðar. Ekki má heldur gleyma berjaferðunum og fjörulallinu sem var upplifun fyrir börnin.

Ein minnisstæðasta ferðin okkar var 1974 er við fórum frá Kópaskeri um Austurland til Reykjavíkur, en þá opnaðist hringvegurinn með brúnni á Skeiðará. Þegar við vorum að nálgast Skaftafell datt vélin í bíl Friðriks allt í einu niður á veginn og þá varð ekki ekið lengra án þess að vélin færi á sinn stað. Ekkert verkstæði var þarna í grennd og þá var það þrautaráð tekið að fá sér spýtukubb og binda vélina upp á sinn stað með kaðli og það dugði alla leið til Reykjavíkur. Á meðan karlarnir voru að bjástra við bílinn gengu konurnar og börnin upp að skriðjökli Svínafells í glampandi sól. Þegar við komum til Reykjavíkur fengu Anna og Friðrik að vita að þau ættu að vera fulltrúar Ungmennasambands Norður-Þingeyinga í skrúðgöngu á þjóðhátíðinni á Þingvöllum og klæðast svörtum og hvítum búningum. Ekki voru þau með slík föt að heiman og því þurfti að leysa það mál. Friðrik fékk hvíta skyrtu og giftingarbuxur af bróður sínum. Anna var með fallega hvíta peysu en við eyddum hluta nætur í að laga gamalt svart dragtarpils af mér sem keypt hafði verið í London 1952.

Það vafðist ekki fyrir Önnu að elda allan algengan mat, en hún var einnig opin fyrir nýjungum. Eftir líffræðinámskeið frá Stóru-Tjörnum, þar sem m.a. var kynnt sú nýbreytni að tína sveppi, fór ég til Önnu með þessa nýju fræðslu og auðvitað hófum við leit að sveppum. Við ákváðum að taka áhættuna, matreiða fenginn og prófa á okkur sjálfum en ekki á eiginmönnum okkar. Reyndist þetta hinn ljúffengasti matur.

Handavinna var hennar líf og yndi og bar heimilið þess vott og vinir og ættingjar fengu einnig að njóta handverka hennar.

Miklu sjúkdómsstríði sem lagt var á þessa myndarlegu, hagleiksríku og góðu konu er nú lokið. Mér er efst í huga ómælt þakklæti fyrir samfylgdina. Öllum aðstandendum bið ég blessunar.

Elín Vilmundardóttir.