Ivar Furu
Ivar Furu
Norski miðvörðurinn Ivar Erlien Furu greindi frá því í gær að hann væri búinn að skrifa undir samning við knattspyrnudeild KR en hann kemur til félagsins að láni frá Molde. „Já, þetta varð klárt í dag [gær].

Norski miðvörðurinn Ivar Erlien Furu greindi frá því í gær að hann væri búinn að skrifa undir samning við knattspyrnudeild KR en hann kemur til félagsins að láni frá Molde. „Já, þetta varð klárt í dag [gær]. Ég skrifaði undir hjá KR og fer þangað í lok mánaðarins,“ sagði Furu við Romsdals Budstikke. Hann er 19 ára gamall og var fimm sinnum í leikmannahópi Molde í norsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð án þess þó að fá að þreyta frumraun sína þar. sindris@mbl.is