Menning Meðal þátttakenda í menningarviku Grindavíkur verða Gunnar Þórðarson, Sossa Björnsdóttir, Birgit Kirke og Stanley Samuelsen.
Menning Meðal þátttakenda í menningarviku Grindavíkur verða Gunnar Þórðarson, Sossa Björnsdóttir, Birgit Kirke og Stanley Samuelsen. — Ljósmynd/Grindavíkurbær
Menningarvika hefst í Grindavík í dag, í sjötta sinn, en dagskráin að þessu sinni er sérlega vönduð og fjölbreytt í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkur í ár. Verður hápunktur menningarviku stórtónleikar í íþróttahúsinu laugardaginn 22.

Menningarvika hefst í Grindavík í dag, í sjötta sinn, en dagskráin að þessu sinni er sérlega vönduð og fjölbreytt í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkur í ár. Verður hápunktur menningarviku stórtónleikar í íþróttahúsinu laugardaginn 22. mars þar sem Fjallabræður og Jónas Sig flytja verk sín ásamt 80 manna Lúðrasveit Vestmannaeyja og Þorlákshafnar.

Formleg setning hátíðarinnar verður í Grindavíkurkirkju á morgun, laugardag, kl. 17. Eftir setninguna verður gestum boðið í safnaðarheimilið í fjölmenningarlegt veisluhlaðborð. Fyrr um daginn fara af stað ýmsar sýningar en um helgina verður jafnframt Safnahelgi á Suðurnesjum.

Meðal fjölmargra viðburða á morgun er opnun málverkasýningar Sossu Björnsdóttur og Birgit Kirke í Veiðarfæragerðinni á Ægisgötu 3. Við opnunina munu tónlistarmennirnir Gunnar Þórðarson og Stanley Samuelsen frá Færeyjum, líkt og Kirke, leika íslenska og færeyska tónlist. Viðburðurinn er liður í samstarfi listamannanna sem hófst í Þórshöfn í Færeyjum vorið 2013 og síðar á Ljósanótt í Reykjanesbæ sama ár. Gunnar og Samuelsen verða einnig meðal flytjenda á setningarhátíð menningarviku í Grindavíkurkirkju á morgun.

Menningarvikan heldur síðan áfram með daglegum viðburðum; fleiri myndlistarsýningum, leiksýningum, ljósmyndasýningum, tónleikum og ýmsu fleiru. Nánari upplýsingar eru á vefnum grindavik.is.