Baldur Sigurðsson
Baldur Sigurðsson
KR vann allöruggan sigur á ÍA, 3:0, þegar gömlu keppinautarnir mættust í deildabikar karla í fótbolta, Lengjubikarnum, í Egilshöllinni í gærkvöld. Baldur Sigurðsson kom KR yfir á 27. mínútu leiksins og staðan var 1:0 þar til á 83.

KR vann allöruggan sigur á ÍA, 3:0, þegar gömlu keppinautarnir mættust í deildabikar karla í fótbolta, Lengjubikarnum, í Egilshöllinni í gærkvöld. Baldur Sigurðsson kom KR yfir á 27. mínútu leiksins og staðan var 1:0 þar til á 83. mínútu þegar annar Þingeyingur, Aron Bjarki Jósepsson, kom Vesturbæingum í 2:0 með marki úr vítaspyrnu. Í uppbótartímanum bætti svo Kjartan Henry Finnbogason þriðja markinu við. KR er þar með komið á topp 1. riðils með 9 stig en ÍA er með 7 stig. vs@mbl.is