Alvarlegt mál Því verður ekki með orðum lýst hvað ég er undrandi yfir ákvörðun Útlendingastofnunar að ætla að vísa úr landi tveimur konum og lítilli stúlku frá Kólumbíu.

Alvarlegt mál

Því verður ekki með orðum lýst hvað ég er undrandi yfir ákvörðun Útlendingastofnunar að ætla að vísa úr landi tveimur konum og lítilli stúlku frá Kólumbíu. Það væri bæði ómannúðlegt og óskiljanlegt og ég vona innilega að forseti Íslands taki í taumana og ógildi þessa ákvörðun. Svona valdníðsla á minnimáttar er okkur Íslendingum til skammar.

Eldri borgari.