Á morgun frá kl. 13-17 munu Deloitte og Lögfræðiaðstoð Orators bjóða upp á ókeypis aðstoð við gerð skattframtala í Lögbergi, Háskóla Íslands, 3. hæð.
Á morgun frá kl. 13-17 munu Deloitte og Lögfræðiaðstoð Orators bjóða upp á ókeypis aðstoð við gerð skattframtala í Lögbergi, Háskóla Íslands, 3. hæð. Um er að ræða árvisst samstarfsverkefni Orator og Deloitte þar sem almenningi býðst að mæta í Háskóla Íslands og fá ókeypis ráðgjöf um hvernig rétt skal standa að framtalsskilum á skatti. Meistaranemar í lögfræði og sérfræðingar Deloitte verða á staðnum.