Bjarni Blomsterberg fæddist í Reykjavík 17. febrúar 1917. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 28. febrúar 2014.

Foreldrar hans voru Ásta Þórunn Bjarnadóttir, f. 20.2. 1898 á Melum í Leirársveit, d. 24.11. 1918, og Frederik Hans Andreas Blomsterberg, f. 6.10. 1880 í Helsingør, d. 23.10. 1949.

Albróðir Bjarna var Andrés Blomsterberg, f. 25.6. 1918, d. 16.4. 1997. Hálfbræður Bjarna samfeðra voru Níels Maríus Blomsterberg, f. 15.1. 1927, d. 9.6. 2013, og Hans Blomsterberg, f. 9.8. 1928, d. 8.9. 2005. Bjarni og Andrés bróðir hans ólust upp hjá móðurömmu sinni, Ingibjörgu Bjarnadóttur, eftir að móðir þeirra lést úr spænsku veikinni 1918.

Sonur Bjarna og Birnu Eggertsdóttur Nordahl, f. 30.3. 1919, d. 8.2. 2004, er Eggert N. Bjarnason, f. 25.7. 1937. Eiginkona hans var Regína Einarsdóttir, f. 11.6. 1940, d. 1.9. 1980. Börn þeirra eru Einar, Unnur, Ásta, Birna og Helga. Barnabörnin eru þrettán og barnabarnabörnin sjö. Seinni kona Eggerts var Berta Guðbjörg Rafnsdóttir, f. 7.1. 1944, d. 31.3. 2008.

Dætur Bjarna og fyrri konu hans, Ástu Sigrúnar Hannesdóttur, f. 16.7. 1920, d. 10.12. 2003, eru: 1) Ingibjörg Ásta, f. 7.3. 1940, d. 17.7. 1984. Hún var gift Braga Ingiberg Ólafssyni, f. 16.12. 1939. Barn þeirra er Ólafur en fyrir átti Inga Ástu Sigrúnu með Erlingi Ísfeld Magnússyni. Barnabörnin eru sjö og eitt barnabarnabarn. 2) Margrét Erna, f. 3.12. 1942, gift Grétari Benediktssyni, f. 20.11. 1941. Börn þeirra eru Benedikt Ingi og Sigurlaug Ásta. Barnabörnin eru fimm og barnabarnabörnin tvö.

Bjarni kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Þórunni Valgerði Jónsdóttur, f. 6.9. 1925 í Hafnarfirði, 13.5. 1947. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson, f. 12.8. 1879 í Lásakoti á Álftanesi, d. 26.10. 1936, og Guðfinna Margrét Einarsdóttir, f. 10.11. 1888 í Haukshúsum á Álftanesi, d. 5.8. 1982.

Bjarni og Valgerður eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Birna, f. 31. 7. 1949, gift Ingvari J. Viktorssyni, f. 9.4. 1942. Synir Birnu eru Bjarni Birkir og Freyr. Börn Ingvars eru Páll, Viktor og Heiðrún. Barnabörnin eru þrettán og barnabarnabörnin tvö. 2) Rúnar Þór, f. 4.9. 1953, d. 2.2. 1954. 3) Hrafnhildur, f. 22.10. 1956, gift Birgi Finnbogasyni, f. 18.9. 1948. Dætur þeirra eru Valgerður og Hjördís. Barnabörnin eru þrjú. 4) Valur, f. 19.11. 1959. Börn hans eru Sigrún Birna, Berglind Svana, Bjarni og Valur.

Bjarni fékkst við ýmis störf á lífsleiðinni. Ungur nam hann húsgagnasmíði í Danmörku og vann síðar við leikfangasmíði í Laufahúsinu á Laugavegi 28. Hann var bóndi í Höfða í Mosfellssveit og seinna rak hann svínabú í Straumi í Hafnarfirði. Hann rak nokkrar verslanir í Reykjavík og Hafnarfirði. Bjarni stofnaði verslunina Fjarðarkaup með félaga sínum Sigurbergi Sveinssyni og eiginkonum þeirra árið 1973 og starfaði þar í rúm 20 ár eða þar til hann settist í helgan stein. Bjarni hafði ætíð mikinn áhuga á garðyrkju og smíðum og varði að mestu frítíma sínum í garðinum eða við smíðar í bílskúrnum í Brekkuhvammi 9 í Hafnarfirði, þar sem þau bjuggu til margra ára.

Útför Bjarna fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 14. mars 2014, og hefst athöfnin kl. 13.

Tengdafaðir minn, Bjarni Blomsterberg, er fallinn frá 97 ára gamall. Bjarni fæddist í Reykjavík, en ólst upp hjá móðurömmu sinni að Melum í Melasveit og á Akranesi en síðan flytja þau til Reykjavíkur þar sem þau búa á Skólavörðustígnum. Þar byrjar Bjarni strax sem táningur að rækta dúfur og seinna kanínur, sem hann seldi Hótel Borg og þótti efnilegur á þessu sviði og hafði hann gaman af því að segja sögur frá þessum tíma. Bjarni fór ungur til ættingja sinna í Danmörku til að læra húsgagnasmíði, en lauk ekki námi þar ytra og flutti heim aftur. Hann vann við ýmis störf fyrir og á styrjaldarárunum. Hann fékkst við bæði leigu- og rútubílaakstur og starfaði líka sem sölumaður og ferðaðist þá með strandferðaskipunum og fannst það spennandi starf. Seinna gerðist Bjarni bóndi, fyrst á Höfða í Mosfellsbæ þar sem hann rak þó nokkurt bú með Valgerði konu sinni. Seinna fluttu þau síðan að Straumi í Hafnarfirði þar sem þau ráku myndarlegt svínabú með Kristni Sveinssyni. En kunnastur er Bjarni fyrir störf sín sem kaupmaður, hann rak nokkrar verslanir bæði í Reykjavík og Hafnarfirði, en þar settust þau hjónin að með fjölskyldu sína og þar bjó Bjarni til dauðadags, nú síðast bjuggu þau á Hrafnistu. Árið 1973 stofnaði Bjarni ásamt félaga sínum Sigurbergi Sveinssyni og eiginkonum þeirra verslunina Fjarðarkaup, sem strax varð ein vinsælasta verslun landsins enda vel rekin og heiðarleikinn og umhyggja fyrir viðskiptavinunum ávallt í fyrirrúmi og er svo enn þann dag í dag. Þau hjónin unnu þar lengi vel öll saman eða þar til Bjarni og Valgerður seldu sinn hlut og settust í helgan stein. Þau Bjarni og Valgerður reistu sér fallegt hús að Brekkuhvammi 9 í Hafnarfirði og þar ræktuðu þau garðinn sinn, þau byggðu fallegt garðhús þar sem þau ræktuðu fjölda suðrænna plantna og ávaxta, sem vöktu mikla athygli og garðurinn þeirra var verðlaunaður af fegrunarnefnd bæjarins. Bjarni var ákaflega handlaginn og alltaf að dunda sér við ýmsar smíðar og eru til eftir hann margskonar fallegir smáhlutir sem hann smíðaði. Í daglegu lífi var Bjarni ekki mjög mannblendinn og alls ekki allra. Hann var ekki margorður og lítið fyrir hástemmdar yfirlýsingar, en lofaði hann einhverju þá stóð hann við það. Kannski lýsir það honum vel þegar hann kom til mín einn daginn og bauð mér í bíltúr og ekkert meir um það, en bíltúrnum lauk ekki fyrr en við höfðum ekið norður Kjöl og síðan suður Sprengisand og farið Landmannalaugar og að Skógum og gist tvær nætur. Ekki mörg orð í upphafi, en ansi hreint gaman í ferðinni. Kannski vantaði það að hann gæfi sér tíma til að blanda geði við aðra og gæfi þannig meira af sér.

Ingvar Viktorsson.

Elsku besti afi okkar, þegar við hugsum til stundanna sem við áttum með þér getum við ekki annað en brosað og verið þakklát fyrir þann tíma sem við fengum þótt við vildum óska þess að þessar stundir hefðu orðrið fleiri. Þú varst alltaf svo rólegur og yfirvegaður að á tíðum var erfitt að ná til þín en það gerði tímann með þér enn verðmætari.

Þótt þú hafir oft verið fjarlægur þá þurfti ekki meira en eitt lítið glott frá þér til þess að maður fyndi fyrir hlýju og væntumþykju. Það var alltaf svo gaman að hlusta á sögurnar þínar, þú fangaðir alla í algjöra þögn, þú bjóst yfir svo mikilli visku. Eftir því sem þú varðst eldri var gaman að upplifa hvað lúmski húmorinn efldist þótt hógværðin væri aldrei langt undan.

Blíður, góður og hnyttinn, þrjóskur, þrautseigur og vinnusamur. Þú munt ávallt vera fyrirmynd okkar. Minning þín mun lifa með okkur.

Þín barnabörn, öll óendanlega stolt af því að vera Blomsterberg,

Sigrún Birna, Berglind Svana, Bjarni og Valur.

Fallinn er frá Bjarni Blomsterberg.

Ég kynntist honum árið 1999 þegar við dóttursonur hans, Freyr Hákonarson, fórum að draga okkur saman. Síðar flutti ég inn í íbúðina sem þeir feðgar, Freyr og Sindri Snær, höfðu til umráða á neðri hæðinni í húsinu þeirra í Brekkuhvammi í Hafnarfirði.

Bjarni var maður rólegheita eins og ég kynntist honum. Hann hafði sig ekki mikið í frammi en átti sína lúmskt skondnu hlið. Honum fannst til dæmis ekki leiðinlegt þegar ég, í starfi mínu sem flugfreyja, kom heim úr flugi með pela af „góðgæti“ og færði honum, sérstaklega ef ég færði honum það í einkennisbúningnum.

Um það leyti sem ég kynntist Bjarna var hann að láta af smíðamennsku, mestmegnis vegna sjónskerðingar sem herjaði á hann síðastliðin ár, en í gegnum tíðina hef ég séð mikið af fallegri og vandaðri smíði eftir hann, allt frá leikfangavörubílum til fagurlega útskorinna myndaramma.

Það var jafnframt magnað að sjá hvað hann lét sjónina ekki aftra sér við lestur dagblaða til að halda sér við efnið, oft með tveimur stækkunarglerjum sem sett voru saman. Fyrir vikið var Bjarni alltaf inni í málefnum líðandi stundar og hafði áhugaverðar og oft á tíðum skemmtilegar skoðanir á mönnum og málefnum.

Ég vil fá að þakka Bjarna Blomsterberg fyrir góð kynni.

Hvíl í friði.

Ragnheiður Gunnarsdóttir.

Við, sem stóðum að stofnun Fjarðarkaupa fyrir 40 árum, kveðjum nú góðan vin og samstarfsmann, Bjarna Blomsterberg. Leiðir okkar Bjarna höfðu raunar legið saman nokkru fyrr þegar ég sá um bókhaldið fyrir rekstur hans en Bjarni var meðal annars kaupmaður í Hólsbúð við Hringbraut í Hafnarfirði. Mér varð þá strax ljóst að honum var kaupmennskan í blóð borin.

Samstarf okkar var með miklum ágætum á þessum tíma sem leiddi til þess að við ákváðum að stofna saman lágvöruverðsverslunina Fjarðarkaup við Trönuhraun 8. Og verkaskiptingin var skýr frá upphafi; undirritaður sá um bókhald og pappírsvinnu en Bjarni um innkaup og daglegan rekstur. Verslunin naut mikilla vinsælda frá fyrsta degi og fljótlega varð ljóst að stækkunar var þörf. Það gerðum við líka nokkrum sinnum og fluttum Fjarðarkaup síðan að Hólshrauni 1 árið 1982.

Samstarf okkar Bjarna var afar farsælt þau 20 ár sem við unnum saman í Fjarðarkaupum eins og árin þar á undan. Bjarni var mikill ljúflingur, dagfarsprúður og þægilegur í allri umgengni og milli okkar ríkti fullkomið traust. Það eru ekki sjálfsögð forréttindi að fá að mæta til vinnu við slíkar aðstæður daglega svo áratugum skiptir og fyrir það verð ég Bjarna ævinlega þakklátur.

Bjarni státaði vissulega af fleiri mannkostum sem of langt mál væri að telja upp hér í stuttri grein en fyrir Fjarðarkaup skipti ekki minnstu að hann gat verið harður í horn að taka þegar kom að samningaviðræðum í innkaupum fyrir verslunina. Hann bar jafnan hag viðskiptavinanna fyrir brjósti og lagði sig allan fram um að þeir nytu hagstæðra innkaupa í sanngjörnu verðlagi en um leið góðrar þjónustu og framúrskarandi vöruúrvals.

Bjarni var samviskusamur dugnaðarforkur sem lét sér aldrei verk úr hendi falla og ekki man ég eftir því að hann missti svo mikið sem klukkustund úr vinnu vegna veikinda. Hann sinnti kaupmennskunni af lífi og sál öll árin ásamt okkur konu minni, Ingibjörgu Gísladóttur og eiginkonu sinni, Valgerði Jónsdóttur, sem lifir mann sinn.

Þau Valgerður og Bjarni ákváðu árið 1993 að láta staðar numið í rekstri Fjarðarkaupa og úr varð að við hjónin keyptum þeirra hlut. Þau tímamót voru á allan hátt með sama brag og áratugirnir tveir og þau hjónin kvöddu Fjarðarkaup með friðsemd, velvild og reisn. Þá stóð verslunin á traustum grunni. Enda sniðum við okkur ávallt stakk eftir vexti sem voru vissulega einkunnarorðin í rekstrinum allan tímann – og eru enn.

Fyrir hönd okkar í Fjarðarkaupum færi ég Valgerði og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Einlægar þakkir fær Bjarni Blomsterberg fyrir ómetanlega tryggð og vináttu í farsælu samstarfi okkar um áratugaskeið.

Sigurbergur Sveinsson.

Leiðir okkar Bjarna lágu fyrst saman þegar hann kom að tali við mig fyrir um 20 árum og bað mig að byggja fyrir sig og Völu sumarbústað í Skorradal. Hann sagði mér bara að byrja að byggja húsið, hann kæmi svo næstu daga og gengi frá innborgun. Allt sem Bjarni sagði stóð eins og stafur á bók og sumarhúsið reis á sælureit þeirra hjóna. Bjarni var þar öllum stundum að dunda sér við smíðar og fleira og auðvitað sá Vala um öll veisluherlegheitin. Þau voru yndisleg heim að sækja.

Nokkrum mánuðum seinna kom Bjarni að tali við og bað mig að endurbyggja gamalt hús í Hafnarfirði. Það hús hýsir Súfistann í dag. Ég tók glaður við verkefninu. Bjarni tjáði mér að ég fengi mér til aðstoðar tvo vaska menn. Þegar hafist var handa við niðurrifið birtist mannskapurinn. Tveir menn á áttræðisaldri, Bjarni og Finnbogi. Mörgum hefði brugðið og átt von á mun yngri mönnum. En þeir stóðust allar mínar væntingar og gott betur.

Það var einkar ánægjulegt að kynnast Bjarna, traustari mann er varla hægt að finna. Blessuð sé minning hans.

Mínar innilegustu samúðarkveðjur til Völu og aðstandenda.

Eyþór Ármann Eiríksson.