Lars Lagerbäck
Lars Lagerbäck
Fjórði vináttulandsleikur íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu á fyrri hluta þessa árs var staðfestur í gær. Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvellinum 4. júní og endurgeldur heimsóknina með því að spila í Tallinn í mars 2015.

Fjórði vináttulandsleikur íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu á fyrri hluta þessa árs var staðfestur í gær. Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvellinum 4. júní og endurgeldur heimsóknina með því að spila í Tallinn í mars 2015. Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson hafa þegar teflt liðinu fram í vináttuleikjum gegn Svíum og Walesbúum og liðið sækir Austurríki heim 30. maí, fimm dögum fyrir leikinn við Eistland. Í haust eru svo fjórir fyrstu leikirnir í undankeppni EM. vs@mbl.is