Erla Sigurðardóttir fæddist 20. nóvember 1923 í Brekkuholti við Bræðraborgarstíg í Reykjavík. Hún lést 5. mars 2014.

Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson verkstjóri, f. 4.9. 1890 á Fossi á Skaga, d. 30.8. 1965, og Sigríður Jóhannesdóttir húsfreyja, f. 19.9. 1891 í Brekkuholti, d. 21.2. 1956.

Systkini Erlu eru: Bryndís, f. 1916, d. 1984, Bergljót, f. 1918, d. 2006, Jóhanna (uppeldissystir), f. 1922, d. 1993, Guðbjörg, f. 1922, d. 1980, Aðalheiður, f. 1925, d. 2010, Bertha, f. 1931, d. 2012, og Jóhannes, f. 1933, öll fædd í Brekkuholti.

Erla giftist 10. febrúar 1950 Gissuri Guðmundssyni, vélstjóra í Reykjavík, f. 25. ágúst 1920 í Hrauni í Keldudal í Dýrafirði. Hann lést 29. nóvember 2000. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson, skútuskipstjóri, togarasjómaður og seglasaumari, f. 19. júní 1885 í Haukadal í Dýrafirði, d. 8. júlí 1968, og k.h. Guðrún Björnsdóttir, ljósmóðir, f. 17. ágúst 1884 á Kirkjubóli á Bæjarnesi, Múlahreppi, A-Barð., d. 7. júlí 1960.

Börn þeirra eru: 1) Sigríður Gissurardóttir, f. 20. október 1955. Eiginmaður hennar er Guðmundur Ragnar Ragnarsson. Börn: Elst er Erla Magnúsdóttir, börn hennar eru Ísey, sem á dótturina Önju Mist, og Víkingur Breki, Íris Magnúsdóttir, sambýlismaður hennar er Guðmundur Ingi Þorsteinsson og saman eiga þau Kamillu Antoníu. Lilja Guðmundsdóttir, sambýlismaður hennar er Orri Snævar Stefánsson og saman eiga þau Alexöndru Líf og Emblu Nótt og yngst er Heiða Guðmundsdóttir. 2) Sigrún Gissurardóttir, f. 14. ágúst 1961. Eiginmaður hennar er Steinar S. Jónsson. Börn: Elstur er Skarphéðinn Steinarsson, Sandra Steinarsdóttir, sambýlismaður hennar er Ögmundur Kristinsson, og yngstur er Gissur Orri Steinarsson, kærasta hans er Eydís Einarsdóttir.

Erla hóf sinn búskap á Melhaga 9, Reykjavík en fluttist 1965 að Háaleitisbraut 155 þar sem hún bjó þar til hún fluttist á Hjúkrunarheimilið Eir árið 2008 þar sem hún lést.

Útför Erlu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 14. mars 2014, og hefst athöfnin kl. 11.

Þá er komið að því að kveðja elskulega tengdamóður mína eftir frábær kynni í 38 ár. Erla var einstaklega góð heim að sækja, fljótlega eftir að ég fór að venja komur mínar á Háaleitisbrautina var mér borðið til borðs með fjölskyldunni sem urðu hundruð skipta. Það var alveg sama hvort var um að ræða kvöldverð á þriðjudegi eða sunnudegi, þetta voru alltaf þvílíkar veislur, ofnsteik með brúnni sósu, purusteikin, rækjukokteillinn og svo ekki sé minnst á rabarbarafrómasinn sem var einstakur. Erla og Gissur reyndust okkur frábærlega þegar við eignuðumst okkar fyrsta barn, Skarphéðin, og get ég ekki hugsað mér hvernig þetta hefði farið ef þeirra aðstoðar hefði ekki notið við. Erla var mikill gleðigjafi og hélt hún margar veislurnar, enda voru fjölskyldurnar mjög samheldnar og vinirnir margir og fékk ég að kynnast mörgu góðu fólki sem nú hefur fengið hana til sín. Elsku Erla, eins og ég sagði í minningargreininni hans Gissurar fyrir tæpum 14 árum ætlaði ég að passa þig á meðan þar sem hann fór á undan, en nú er stundin runnin upp og hann hefur tekið við og þakka ég innilega fyrir mig. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Með kveðju,

Steinar S. Jónsson.

Það er sárara en nokkur orð fá lýst að þurfa að kveðja þig elsku amma.

Þú varst án efa kraftmesta, duglegasta og fallegasta kona sem ég hef kynnst. Þú bjóst alla tíð uppi á þriðju hæð, burðaðist með pokana úr búðinni upp, spilaðir með vinum þínum þrisvar í viku. Þú hugsaðir meira um þá sem voru í kringum þig en þig sjálfa – sem segir allt sem segja þarf um þig.

Allar góðu minningarnar sem við eigum streyma fram og ylja okkur um hjartaræturnar. Allar sumarbústaðaferðirnar, þar sem allir skemmtu sér konunglega, öll matarboðin þar sem allir hlógu þar til magaverkir og tár voru farin að segja til sín. Það er gott að eiga svona minningar þegar maður þarf að skilja við og kveðja ástvin.

Núna ertu komin á betri stað þar sem þér líður betur, án allra verkja. Núna getur þú skoppað um með afa, sem er án efa glaður að sjá þig loksins, systrum þínum og öllum vinum ykkar ásamt foreldrum.

Síðasta daginn sem þú varst hjá okkur voru pabbi, Steinar og Sigrún hjá þér. Það var kveikt á lampanum sem afi átti en allt í einu sprakk peran og á sama tíma ákvaðst þú að kveðja okkur. Afi var að segja að hann væri tilbúinn að fá þig til sín.

Við munum segja litlu gullunum okkar, sem þér þótti svo gaman að fá í heimsókn og fylgjast með þeim þroskast og stækka, allt um ykkur afa og passa að þær fái að vita hversu yndislegt fólk þið voruð. Við Orri munum passa allt fólkið okkar fyrir þig.

Við elskum þig og munum alltaf gera. Við hittumst aftur þegar okkar tími er kominn. Hafðu það gott elsku engill.

Þar sem englarnir syngja sefur þú

sefur í djúpinu væra.

Við hin sem lifum, lifum í trú

að ljósið bjarta skæra

veki þig með sól að morgni.

Drottinn minn faðir lífsins ljós

lát náð þína skína svo blíða.

Minn styrkur þú ert mín lífsins rós

tak burt minn myrka kvíða.

Þú vekur hann með sól að morgni.

(Bubbi Morthens)

Lilja, Orri, Alexandra Líf

og Embla Nótt.

Elsku hjartans amma mín. Það síðasta sem ég sagði við þig var: „Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, þú ert yndisleg,“ en þú varst einmitt vön að segja það sama við mig.

Síðustu daga okkar saman söng ég fyrir þig Í bljúgri bæn og Maístjörnuna sem voru lögin okkar. Ég fletti einnig í gegnum myndaalbúm sem innihalda dýrmætar minningar sem seint munu gleymast. Það sem mér þótti einna vænst um var að ég uppgötvaði að ég á einungis góðar minningar úr æsku og svo margar þeirra tengjast þér og Gissuri afa.

Öll ferðalögin sem ég fór með ykkur í: til Akureyrar til Jóns, Billu og Ólafar á Svalbarðseyri í litla steinkofann, í sumarhús á Írafossi og Ljósafossi, veiðiferðir, marga hringi í kringum landið og ferðir til útlanda, til Spánar og Ítalíu. Þar vorum við systur látnar spreyta okkur á táknmáli til að kaupa ýmsa hluti á ítölsku, með misgóðum árangri.

Það voru ófáar tískusýningarnar sem við systurnar héldum í stofunni og fengum að klæðast skemmtilegum fötum sem við fundum í fataskápum, og nota fylgihluti, stóra skó og skart. Stofunni var breytt í það leiksvið sem hentaði hverju sinni. Allar þessar minningar eru ýmist geymdar í huga okkar, myndum eða á slides-myndum sem við fjölskyldan höfðum alltaf jafn gaman að skoða saman í forstofunni á Háaleitisbraut.

Það var alltaf svo gott að koma til ykkar. Heitar kleinur með kaffinu eða marmarakaka, ristað brauð og kakómalt og aðrar kræsingar. Þið kennduð mér einnig svo margt, að tefla, spila og leggja kapla, skipta um dekk, krosssaum og margt, margt fleira. Við hlógum alltaf svo mikið saman og ég mun aldrei gleyma hlátrinum þínum þegar ég knúsaði þig niður í gólf og „snepplaði þig“, sem ég gerði reyndar hvorki fyrr né síðar við nokkurn annan en þig.

Ég held, amma mín, að þú hafir átt stóran þátt í að gera mig að þeim nautnasegg sem ég er í dag, en ég sat löngum í faðmi þínum og þú straukst hárið á mér bak við eyrun og hrjúfum vinnuhöndum yfir bakið á mér. Mikið þótti mér það gott og geri ég það sama við Kamillu mína í dag.

Þegar þú fluttist á Eir komum við fjölskyldan oft til þín í heimsókn og Kamilla hlakkaði alltaf svo til að sjá þig. Hún er með mynd af þér í albúmi á leikskólanum sínum og stendur við hana: „Ég með elsku Erlu langömmu minni.“ Við báðum saman fallega bæn um kvöldið daginn sem þú kvaddir okkur og Kamilla bað guð og englana að gæta þín.

Elsku amma, þú hefur löngum verið engill í dulargervi og nú ertu komin til þeirra. Sendum okkar bestu kveðju til afa.

Með miklum söknuði kveðjum við þig, en ég veit að við munum aldrei gleyma þér.

Takk fyrir allt,

Íris, Guðmundur Ingi

og Kamilla Antonía.

Erla, góða Erla!

eg á að vagga þér.

Svíf þú inn í svefninn

í söng frá vörum mér.

Kvæðið mitt er kveldljóð,

því kveldsett löngu er.

Úti þeysa álfar

um ísi lagða slóð.

Bjarma slær á bæinn

hið bleika tunglskinsflóð.

Erla, hjartans Erla,

nú ertu þæg og góð!

Hart er mannsins hjarta,

að hugsa mest um sig.

Kveldið er svo koldimmt,

ég kenndi í brjósti um mig.

Dýrlega þig dreymi

og drottinn blessi þig.

(Stefán frá Hvítadal)

Elsku amma mín. það er svo sárt að þurfa að kveðja þig en minningin um yndislega, fallega og sterka konu á eftir að vera hjá okkur öllum, alla tíð. Þú varst alltaf svo góð við okkur, og það var svo gott að koma í ömmu- og afaknús.

Ég veit að þú ert komin á betri stað og líður vel hjá afa, er viss um að hann hafi tekið vel á móti Erlu sinni.

Hvíldu í friði elsku amma mín, þín er sárt saknað.

Heiða Guðmundsdóttir.

Elsku amma mín, nú er komið að kveðjustund. Á slíkri stundu hellast yfir mann minningar. Stór hluti barnæsku minnar átti sér stað hjá þér og afa á Háaleitisbrautinni, þaðan á ég margar yndislegar minningar með þér. Við barnabörnin komum oft til þín í pössun eða heimsókn og áttum þar góðar stundir saman. Það var aldrei kvöð að fara til þín heldur var maður fullur tilhlökkunar. Þú tókst alltaf svo vel á móti okkur og sást til þess að við ættum glaðan dag, vildir allt fyrir okkur gera.

Betri manneskju en þig er varla hægt að finna, frábær mamma, amma, eiginkona og bara manneskja yfir höfuð. Dugleg, ákveðin en fyrst og fremst hjartahlý og góð.

Ég elska þig amma mín og er svo þakklát fyrir stundir okkar saman, minning þín mun alltaf lifa í hjarta mínu.

Hvíl þú í friði.

Þín

Sandra Steinarsdóttir.

Elsku fallega amma okkar. Þín verður sárt saknað, þú varst stór partur af lífi okkar beggja, stóran hluta af ævi okkar bjuggum við hjá ykkur afa og fengum alla þá ást, aga og umhyggju sem öll börn þurfa og miklu meira en það. Betri fyrirmynd er ekki hægt að finna en þig, svo sannarlega yndisleg í alla staði og uppfull af kærleika og ást.

Þú last fyrir okkur Pollýönnu og reyndist svo vera alveg eins sjálf þakklát, æðrulaus, sterk og góð. Þú varst svo sannarlega engill í mannsmynd og ert nú á himni.

Þú munt alltaf lifa í hjörtum okkar og erum við þakklátar fyrir hvern dag sem við fengum að njóta með þér. Munum alltaf elska þig og minninguna um þig.

Langar að láta fylgja bænina okkar (Ísey) sem við fórum með á hverju kvöldi áður en við fórum að sofa:

Vertu, Guð faðir, faðir minn,

í frelsarans Jesú nafni,

hönd þín leiði mig út og inn,

svo allri synd ég hafni.

(HP)

Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér

og ekki fæ ég miklu ráðið um það hver hann fer.

En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín

og leiði mig á endanum aftur til þín.

Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn,

svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn.

Í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð

og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð.

Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin

Því ég sé það fyrst á rykinu, hve langur tími er liðinn.

Og ég skrifa þar eitthvað með fingr inum sem skiptir öllu máli.

Því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli.

Já, og andlitið þitt málað. Hve ég man það alltaf skýrt,

augnlínur og bleikar varir, brosið svo hýrt.

Jú ég veit vel, að ókeypis er allt það sem er best,

En svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst.

Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér

og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér.

Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimm an dettur á.

En ég sakna þín mest á nóttunni er svipirnir fara á stjá.

Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær

stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær.

Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund.

En þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund.

(Megas)

Erla og Ísey.