Alþjóðasamtök flugvalla (Airports Council International (ACI)) hafa valið Keflavíkurflugvöll á heiðurslista yfir bestu flugvelli í heimi – ACI Director General's Roll of Excellence.

Alþjóðasamtök flugvalla (Airports Council International (ACI)) hafa valið Keflavíkurflugvöll á heiðurslista yfir bestu flugvelli í heimi – ACI Director General's Roll of Excellence. Útnefningin nær til flugvalla sem óslitið hafa sýnt frábæran árangur í þjónustukönnunum samtakanna meðal flugfarþega frá árinu 2008, segir í tilkynningu frá Isavia.

Alls hefur 21 flugvöllur hlotið þennan heiður frá árinu 2011 og í ár bætast eftirtaldir sex alþjóðaflugvellir í hópinn: Keflavíkurflugvöllur, Dubai-flugvöllur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Kaíróflugvöllur í Egyptalandi, Hyderabad Rajiv Gandhi-flugvöllur á Indlandi, Taoyuan-flugvöllur á Taívan og Sangster-flugvöllur á Jamaíku.

Þá kemur fram í tilkynningunni að framkvæmdastjóri ACI segi áherslu á að uppfylla síauknar væntingar farþega skipta sköpum í samkeppnishæfni alþjóðaflugvalla. Þessir sex flugvellir hafi ítrekað sýnt að þar ríkir mikill skilningur á áherslu farþega á góða þjónustu. „Þessi frábæri árangur er fyrst og fremst að þakka starfsfólki og samstarfsaðilum okkar á Keflavíkurflugvelli og áherslu á sífellt aukna þjónustu,“ er haft eftir Birni Óla Haukssyni, forstjóra Isavia, í tilkynningu.