Kjör Atkvæði greidd á næstunni.
Kjör Atkvæði greidd á næstunni. — Morgunblaðið/Golli
Björn Már Ólafsson bmo@mbl.is Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur undirritað samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi sínum við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Björn Már Ólafsson

bmo@mbl.is

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur undirritað samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi sínum við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum áður en kosið verður svo um hann. „Þetta er stuttur samningur til 14 mánaða, með einni launahækkun og hækkun á desember- og orlofsuppbót. Vegna lengdar samningsins er líka í honum eingreiðsla,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður félagsins, við Morgunblaðið.

Lengri samningur á næsta ári

Samninganefndin lítur á samninginn sem aðfarasamning að lengri kjarasamningi sem myndi taka gildi á næsta ári, 2015. Í samkomulaginu sem undirritað var í gær er að finna nýja viðræðuáætlun fyrir næsta samning.

Að sögn Ólafs verður nýja samkomulagið kynnt félagsmönnum á næstu dögum. „Við erum búin að vera í samningaviðræðum síðan í desember og búið er að funda stíft. Nú förum við í það að kynna samkomulagið þar sem við verðum að svara innan hálfs mánaðar.“