Aukin bjartsýni Greining Íslandsbanka segir Íslendinga almennt virðast fyllast aukinni bjartsýni þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum.
Aukin bjartsýni Greining Íslandsbanka segir Íslendinga almennt virðast fyllast aukinni bjartsýni þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum. — Morgunblaðið/ÞÖK
Íslenskir neytendur eru orðnir mun bjartsýnni á ástand og horfur í efnahags- og atvinnumálum en raunin var á seinni helmingi síðasta árs, ef marka má Væntingavísitölu Gallup (VVG) fyrir marsmánuð, sem Capacent Gallup birti í gærmorgun.

Íslenskir neytendur eru orðnir mun bjartsýnni á ástand og horfur í efnahags- og atvinnumálum en raunin var á seinni helmingi síðasta árs, ef marka má Væntingavísitölu Gallup (VVG) fyrir marsmánuð, sem Capacent Gallup birti í gærmorgun.

VVG hækkaði um tæp 9 stig á milli febrúar og mars og mælist nú 94,8 stig. Þetta er hæsta gildi vísitölunnar frá því í júní í fyrra og í raun hefur gildi hennar aðeins tvívegis mælst hærra frá því í apríl 2008, að því er segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.

Greiningin segir að í maí og júní í fyrra, þegar VVG fór upp í 101 stig, hafi vísitalan verið talsvert lituð af niðurstöðu kosninga til Alþingis, en almennt virðist Íslendingar fyllast aukinni bjartsýni þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum.

Áfram væntingar um betri tíð

Þrátt fyrir að VVG fari ekki yfir 100 stigin í þetta sinn, og Íslendingar teljist því enn ekki almennt bjartsýnir á ástandið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar, þá telur greiningardeildin ekki ólíklegt að með hækkandi sól fari vísitalan yfir 100 stigin.Allar undirvísitölur VVG hækka á milli mælinga í febrúar og mars. Mest hækkar mat neytenda á núverandi ástandi, eða um tæp 18 stig. Mælist sú undirvísitala nú 54,8 stig, sem er hæsta gildi vísitölunnar frá því fyrir hrun.

„Þó er ljóst að Íslendingar vænta þess að ástandið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar muni batna frá núverandi ástandi, líkt og þeir hafa vænst frá því snemma árs 2008. Þannig er vísitalan sem mælir væntingar neytenda til ástandsins eftir 6 mánuði 121,5 stig og hækkar um tæp 3 stig frá fyrri mánuði.

Fyrir hrun var þessu öfugt farið, en frá miðju ári 2004 til mars 2008 var gildi vísitölunnar sem mælir mat neytenda á núverandi ástandi ávallt hærra en þeirrar sem mælir mat á væntingum til 6 mánaða. Töldu neytendur þá núverandi ástand svo gott að það myndi varla batna upp frá þessu, andstætt við stöðuna nú,“ segir í Morgunkorninu.

Væntingavísitalan
» VVG hækkaði um tæp 9 stig á milli febrúar og mars og mælist hún nú 94,8 stig. Þetta er hæsta gildi vísitölunnar frá því í júní í fyrra.
» Gildi væntingavísitölu Gallup hefur aðeins tvívegis mælst hærra frá því í apríl 2008.
» Íslendingar vænta þess að ástandið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar muni batna frá núverandi ástandi, segir í Morgunkorni Íslandsbanka.