Leðju mokað í Washington.
Leðju mokað í Washington.
Enn er yfir 170 manns saknað eftir aurskriðuna miklu skammt frá Seattle í Washington-ríki. Vitað er að minnst 14 fórust. Björgunarmenn fundu í gær fjögurra ára dreng, Jacob Spiller, á lífi innan um brak í skriðunni. Föður hans og bróður er enn saknað.

Keðjusagir eru m.a. notaðar við að komast í gegnum brak húsa á svæðinu og ættingjar nota sumir hverjir í örvæntingu hendurnar til að grafa í von um að finna ástvini sína á lífi.

Skriðan féll á bæinn Oso, um 90 kílómetrum norður af Seattle, á laugardagsmorgun þegar flestir íbúanna voru enn heima. Hún rann yfir um 30 hús og sundraði flestum þeirra algjörlega, mörg hús að auki skemmdust. kjon@mbl.is