— Morgunblaðið/Kristinn
Hundurinn var ekki Sámur Ranghermt var í myndatexta á baksíðu blaðsins í gær að Sámur, hundur forsetahjónanna á Bessastöðum, væri með Dorrit og björgunarsveitarmanni á myndinni. Þar var á ferð annar hundur sem tók þátt í leitaræfingu á Hólmavík.

Hundurinn var ekki Sámur

Ranghermt var í myndatexta á baksíðu blaðsins í gær að Sámur, hundur forsetahjónanna á Bessastöðum, væri með Dorrit og björgunarsveitarmanni á myndinni. Þar var á ferð annar hundur sem tók þátt í leitaræfingu á Hólmavík. Beðist er velvirðingar á þessum leiðu mistökum, um leið og birt er mynd af Sámi.