Ritlist Hluti námskeiðsins fer fram í Skriðuklaustri í Fljótsdal um helgina.
Ritlist Hluti námskeiðsins fer fram í Skriðuklaustri í Fljótsdal um helgina. — Morgunblaðið/Ómar
Í seinni hluta mars og byrjun apríl halda Félag ljóðaunnenda á Austurlandi og Gunnarsstofnun námskeið í ritlist með aðkomu Menntaskólans á Egilsstöðum og Rithöfundasambands Íslands.

Í seinni hluta mars og byrjun apríl halda Félag ljóðaunnenda á Austurlandi og Gunnarsstofnun námskeið í ritlist með aðkomu Menntaskólans á Egilsstöðum og Rithöfundasambands Íslands. Þetta er þriggja helga námskeið þar sem farið verður í ljóðagerð, örsögur og smásögur. Nemendur fá að spreyta sig á þessum formum undir leiðsögn og verður hverjum og einum mætt þar sem hann er staddur. Námskeiðið er því ætlað öllum sem á annað borð hafa áhuga á að prófa sig áfram í ritlist, óháð aldri og getustigi.

Eitt af markmiðum námskeiðsins er einmitt að stefna saman yngra og eldra áhugafólki um ritlist með það fyrir augum að þátttakendur miðli hver til annars og styrkist þannig í eigin sköpun. Veitt verður innsýn í margs konar handbragð ritlistar með það að leiðarljósi að þátttakandinn finni sína eigin rödd. Einnig stendur til að fjalla um bókaútgáfu og leiðbeina þátttakendum um hvernig koma megi verkum sínum á framfæri.

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru þau Ingunn Snædal, Skúli Björn Gunnarsson og Sigríður Lára Sigurjónsdóttir auk Kristians Guttesen sem er umsjónarmaður þess. Þetta eru allt reynslumiklir höfundar og ættu nemendur ekki að verða sviknir af kennslunni. Námskeiðið er að mestu haldið í Fellaskóla en stefnt er að því að hluti þess fari fram á Skriðuklaustri í Fljótsdal.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Félag ljóðaunnenda á Austurlandi eða Gunnarsstofnun standa fyrir námskeiðahaldi á sviði ljóðagerðar og ritlistar. Samkvæmt tilkynningu er einn megintilgangur námskeiða á borð við þetta að efla veg ljóðlistar og smásagnagerðar á Austurlandi. Byggist það á þeirri hugmynd, þrátt fyrir trú margra um að listsköpun verði ekki kennd, að hægt sé að efla fólk í ritlist með leiðsögn og samskiptum við jafningja.

Námskeiðin hófust um seinustu helgi en fara einnig fram núna um helgina og helgina þar á eftir, 5. og 6. apríl. Alltaf er kennt í Fellaskóla nema núna á laugardaginn þar sem kennsla fer fram að Skriðuklaustri. Kennt er frá kl. 9.30 til 15.30. Námskeiðsgjald er 10.000 krónur og er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á arnarsig@me.is.