Forstjórinn Finnur Oddsson segir að þau hjá Nýherja séu ánægð með kaup Ciber á starfsemi Applicon og að í þeim felist margþættur ávinningur.
Forstjórinn Finnur Oddsson segir að þau hjá Nýherja séu ánægð með kaup Ciber á starfsemi Applicon og að í þeim felist margþættur ávinningur. — Morgunblaðið/Eggert
Nýherji hefur selt starfsemi félaganna Applicon A/S og Applicon Solutions A/S í Danmörku. Kaupandinn er Ciber A/S í Danmörku, sem er hluti af Ciber Inc., og er samstæða fyrirtækja á sviði upplýsingatækni.

Nýherji hefur selt starfsemi félaganna Applicon A/S og Applicon Solutions A/S í Danmörku. Kaupandinn er Ciber A/S í Danmörku, sem er hluti af Ciber Inc., og er samstæða fyrirtækja á sviði upplýsingatækni.

Söluverð er trúnaðarmál, að því er segir í tilkynningu frá Nýherja.

Greint var frá því í frétt hér á viðskiptasíðu Morgunblaðsins fyrr í þessum mánuði, að Nýherji hefði sett Applicon í Danmörku í söluferli.

Í tilkynningu kemur fram að salan muni hafa óveruleg áhrif á niðurstöðu rekstrarreiknings Nýherja fyrir fyrsta ársfjórðung 2014 en muni treysta lausafjárstöðu félagsins og skerpa áherslur í starfsemi þess.

Ciber í Danmörku mun taka yfir rekstur Applicon frá og með 1. apríl næstkomandi. Applicon félögin í Danmörku eru sérhæfð í sölu og ráðgjöf sem tengist SAP viðskiptahugbúnaði og þróun tengdra hugbúnaðarlausna, en í tilkynningunni segir að tæplega fjörutíu manns starfi hjá félögunum.

Finnur Oddsson forstjóri Nýherja, segir í tilkynningu að salan á Applicon félögunum í Danmörku tákni tímamót fyrir Nýherjasamstæðuna. „Við höfum nú dregið okkur út úr öllum rekstri í Danmörku, en hann hefur ekki gengið sem skyldi síðustu ár. Ein meginskýringin er sú að lítil sem engin samlegðaráhrif voru á milli dönsku félaganna annars vegar og félaga Nýherja á Íslandi og í Svíþjóð hins vegar,“ er haft eftir Finni í fréttatilkynningu.

Einbeita sér að rekstri Nýherja og TM Software

„Við erum afar ánægð með kaup Ciber á starfsemi Applicon félaganna og teljum að í þeim felist margþættur ávinningur. Þjónustu- og lausnaframboð Applicon fellur vel að starfsemi Ciber og verður sameinað félag enn betur í stakk búið til að sinna þörfum kröfuharðra viðskiptavina. Við sjáum einnig tækifæri til samstarfs milli Ciber og fyrirtækja Nýherja þegar fram líða stundir, er jafnframt haft eftir honum.

Nú liggi fyrir að fyrirtækið geti betur einbeitt sér að rekstri Nýherja og TM Software á Íslandi og árangursríku samstarfi Applicon félaganna á Íslandi og í Svíþjóð. „Við væntum þess að það muni efla enn frekar þjónustu til viðskiptavina okkar og bæta afkomu samstæðunnar,“ er jafnframt haft eftir Finni í tilkynningu.