Ingiríður Daníelsdóttir fæddist 13. ágúst 1922. Hún lést 25. febrúar 2014. Ingiríður var jarðsungin 8. mars 2014.

Ég flutti í Bólstaðarhlíð 41 í október 2008. Þá var ég svo heppin að fá íbúð á móti Ingu. Við áttum margar ánægjustundir saman. Hún var alltaf hress og kát og naut líðandi stundar. Kæra þökk Inga mín. Við sjáumst bráðum.

Elín Bjarnadóttir.