Suðurevrópskt hlaðborð í Staðarskála FORSVARSMENN Staðarskála fitja upp á þeirri nýjung að hafa suðurevrópskt hlaðborg í nýjum veitingasal á morgun, laugardag. Verða þar á borðum réttir frá hinum ýmsu löndum S-Evrópu. Hlaðborðið kostar 2.600 kr. á mann og...
Suðurevrópskt hlaðborð í Staðarskála
FORSVARSMENN Staðarskála fitja upp á þeirri nýjung að hafa suðurevrópskt hlaðborg í nýjum veitingasal á morgun, laugardag. Verða þar á borðum réttir frá hinum ýmsu löndum S-Evrópu.
Hlaðborðið kostar 2.600 kr. á mann og fyrir þá sem vilja njóta næturinnar kostar hlaðborg, gisting og morgunverður alls 4.800 kr.
Svana Víkingsdóttir, píanóleikari, og Lovísa Fjeldsted, sellóleikari, flytja tónlist frá Suður-Evrópu.