Eflingu matvælaiðnaðar fagnað
NÝJÖRIÐ Héraðsráð Eyjafjarðar samþykkti bókun, á fyrsta fundi sínum, 11. ágúst, þar sem fagnað er ákvörðun um eflingu matvælaiðnaðar í Eyjafirði.
Ályktunin er svohljóðandi: "Héraðsráð Eyjafjarðar fagnar eindregið samþykkt ríkisstjórnarinnar um eflingu matvælaiðnaðar í Eyjafirði, og þakkar Halldóri Blöndal, landbúnaðarráðherra, forgöngu hans í því máli.
Héraðsráð Eyjafjarðar bindur miklar vonir við að með þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar geti orðið þáttaskil í atvinnulífi og framleiðslumálum á Eyjafjarðarsvæðinu, en leggur jafnframt áherslu á að víðtækt samstarf verði á milli allra þeirra sem standa að framkvæmd þessa máls."