Listasumar '94 Myndlistasýning Listasumar '94 hefur staðið fyrir myndlistasýningum í verslunarglugga Vöruhúss KEA í göngugötunni á Akureyri. Þar sýnir nú Sigurður Árni Sigurðsson.

Listasumar '94 Myndlistasýning Listasumar '94 hefur staðið fyrir myndlistasýningum í verslunarglugga Vöruhúss KEA í göngugötunni á Akureyri. Þar sýnir nú Sigurður Árni Sigurðsson. Hann hóf myndlistarnám við Myndlistaskólann á Akureyri en útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987 og hélt þá til framhaldsnáms í Frakklandi þar sem hann hefur verið búsettur síðan. Sigurður hefur haldið fjölda einka- og samsýninga bæði hér heima og erlendis. Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum hans á Kjarvalsstöðum og í október sýnir hann í Listasafninu á Akureyri.