Reuter Fjárkúgari tekinn föstum tökum FÉLAGI í sérsveitum rússneska innanríkisráðuneytisins sparkar í mann sem handtekinn hefur verið fyrir fjárkúgun, en annar sérsveitarliði heldur hinum handtekna uppi á hárinu.

Reuter Fjárkúgari tekinn föstum tökum

FÉLAGI í sérsveitum rússneska innanríkisráðuneytisins sparkar í mann sem handtekinn hefur verið fyrir fjárkúgun, en annar sérsveitarliði heldur hinum handtekna uppi á hárinu. Handtakan var hluti af aðgerð sérsveitanna gegn svartamarkaðsbraski í Moskvu í gær. Frá því að Borís Jeltsín Rússlandsforseti gaf út tilskipun sína gegn glæpastarfsemi fyrr í sumar, hefur lögregluaðgerðum í höfuðborginni fjölgað mjög.