Símaskráin leiðrétt VERIÐ er að bera út viðauka við símaskrána vegna mistaka sem urðu við vinnslu skrárinnar fyrir þetta ár.
Símaskráin leiðrétt
VERIÐ er að bera út viðauka við símaskrána vegna mistaka sem urðu við vinnslu skrárinnar fyrir þetta ár.
Segir Hrefna Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Pósts og síma að leiðréttingarnar felist í nokkrum gulum síðum með nöfnum lækna sem fallið hafi út, auk einhverra fyrirtækja. Einnig fylgir blaðsíða með leiðréttingum á símanúmerum einstaklinga að sögn Hrefnu. Segir hún ennfremur að ný skrá yfir farsímanúmer sé einnig á leiðinni.