PÉTUR Guðmundsson sigraði í kúluvarpi á Evrópumóti lögreglumanna í frjálsíþróttum sem hófst í London í gær. Hann varpaði kúlunni 19,80 metra. Pétur er eini íslenski keppandinn á mótinu. GUÐMUNDUR Torfason skoraði fyrir nýja liðið sitt, Doncaster Rovers, í 1. umferð deildarbikarsins í Englandi sl. þriðjudagskvöld. Doncaster mætti þá Wrexham í fyrri leik liðanna og mátti sætta sig við 2:4 tap á heimavelli.
JENNY Thompson sigraði í tveimur greinum, 100 m flugsundi og 100 m skriðsundi, á bandaríska meistaramótinu í sundi í gær. Sigur hennar þarf ekki að koma á óvart nema fyrir þær sakir að hún synti handleggsbrotin. Vinstri handleggur hennar var pinnaður saman með sjö nöglum. Hún synti 100 metra flugsund á 1.00,34 mín. og hafði aðeins getað æft flugsund í tvær vikur fyrir mótið vegna handleggsbrotsins.
LASSE Viren frá Finnlandi, sem varð fjórfaldur Ólympíumeistari, hefur í hyggju að selja verðlaunapeningana sína. "Ef ég fæ eina milljón marka (13 milljónir króna) fyrir hvern þeirra, er ég tilbúinn að láta þá," sagði Lasse Viren í viðtali við finnska blaðið Iltalehti. Viren varð þjóðhetja er hann varð Ólympíumeistari í 5.000 og 10.000 metra hlaupi bæði á Ólympíuleikunum í M¨unchen 1972 og í Montreal 1976. "Verðlaunapeningar hafa ekkert gildi fyrir mig. Það skiptir ekki máli hvort þeir eru í mínum hirslum eða einhvers annars," sagði hlauparinn.
SIDNEY Lowe, þjálfari Minnesota Timberwolves sem leikur í NBA-deildinni í körfuknattleik, var rekinn frá félaginu í gær. Liðinu gekk illa á síðasta keppnistímabili, tapaði 62 leikjum af 82. Lowe tók við liðinu í janúar í fyrra af Jimmy Rodgers. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu nýs þjálfara.
FRANSKI landsliðsmaðurinn Jean-Pierra Papin meiddist í leik með Bayern M¨unchen í bikarkeppninni um síðustu helgi, og lék því ekki með Frökkum vináttulandsleikinn gegn Tékkum í fyrrakvöld. Hann gæti einnig misst af fyrsta leik Bayern í þýsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn gegn Þórði Guðjónssyni og félögum í Bochum.