Hópurinn Hér má sjá hópinn Wakka Wakka! sem að undanförnu hefur gert það gott víða um heim. Næsti viðkomustaður er Ísland á Listahátíð.
Hópurinn Hér má sjá hópinn Wakka Wakka! sem að undanförnu hefur gert það gott víða um heim. Næsti viðkomustaður er Ísland á Listahátíð.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Brúðuleikhús er ekki bara fyrir börn heldur getur það verið stórsniðugt form leikhúss, fullt af drama, spennu eða gríni. Íslensk leikkona, Andrea Ösp Karlsdóttir, hefur ferðast heimsálfa á milli ásamt fimm öðrum leikurum og sýnt brúðuleik.

Brúðuleikhús er ekki bara fyrir börn heldur getur það verið stórsniðugt form leikhúss, fullt af drama, spennu eða gríni. Íslensk leikkona, Andrea Ösp Karlsdóttir, hefur ferðast heimsálfa á milli ásamt fimm öðrum leikurum og sýnt brúðuleik. Nú eru þau á leið á Listahátíð hér á landi og ætla að sýna brúðuleikritið SAGA sem er bæði hjartnæmt og fyndið auk þess að eiga rætur að rekja til Íslands.

Malín Brand

malin@mbl.is

Margir kannast við Leikhópinn Lottu, bæði fullorðnir og börn, en enn fleiri börn hafa hitt tröllastelpuna Ellu sem lærir umferðarreglurnar eins og yngstu nemendur grunnskólans. Leikkonan sem fer með hlutverk Ellu er Andrea Ösp Kalsdóttir og hún hefur sannarlega komið víða við á leikferli sínum. Hún tilheyrir meðal annars erlendum leikhópi sem setur upp brúðuleikrit víða um heim. Sýningin SAGA hefur fengið frábæra dóma víða og meðal annars unnið Drama Desk-verðlaunin í New York. Það brúðuleikrit gefst gestum Listahátíðar kostur á að sjá í Þjóðleikhúsinu 5. og 6. júní næstkomandi.

Alltaf tími fyrir Lottu

Andrea er orðin vön því að vinna bæði hér á landi og erlendis og er orðin æði flink í að púsla hinum ýmsu verkefnum saman.

„Ég vinn með brúðuleikhópnum Wakka Wakka! í Noregi, Bandaríkjunum og víðar. Þetta er bandarísk-norskur brúðuleikhópur og allar sýningarnar eru unnar í samvinnu bæði í Noregi og New York. Svo eru þær sýndar Off Broadway í New York,“ segir Andrea um sýningar hópsins sem samanstendur af sex leikurum og hljóðmanni sem er hinn Íslendingurinn í hópnum. Hinir leikararnir eru norskir, bandarískir og írskir.

Þessi tiltekna sýning, SAGA, var sýnd í New York á síðasta ári um nokkurra mánaða skeið. „Svo túruðum við með Riggs Teatret um allan Noreg. Leikkonan Ísgerður Elfa mun taka að sér eitt hlutverk í sýningunni þegar við setjum hana upp á Íslandi,“ segir Andrea.

Búið er að bjóða hópnum til Slóveníu, Króatíu, Englands og Skotlands.

Aðspurð hvort hún hafi tíma fyrir leikhópinn Lottu segir hún svo vera. „Já, þetta púslaðist saman með Lottu,“ segir hún fegin því af henni vill hún ekki sleppa hendinni.

Þrjátíu brúður í verkinu

Andrea segir að hugmyndin á bak við þetta tiltekna verk hafi verið að hópinn langaði að búa til tengingu við Ísland. „Egill Skallagrímsson er frá svipuðum slóðum og við vinnum sýninguna á. Upphaflega hugmyndin var að gera sýningu um Íslendingasögurnar og víkingana en það þróaðist mjög fljótlega út í blöndu af víkingunum okkar sem hér námu land og útrásarvíkingunum. Á endanum vorum við komin með sögu sem gerist í nútímanum og er um venjulegan mann í efnahagshruninu en er með tengingar inn í víkingasögurnar og alls konar íslenskt,“ segir Andrea og vísar þar til goðafræðinnar, eldgossins í Eyjafjallajökli, norðurljósanna, íslenska hestsins og svo mætti lengi telja.

Allt er þetta byggt á brúðuleik og alls eru yfir þrjátíu brúður í leikritinu.

„Þær eru allt frá 10 sentímetrum upp í tvo og hálfan metra á hæð en flestar eru á bilinu 50 sentímetrar til einn metri.“

Brúðuleikhúsið er vissulega nokkuð frábrugðið því sem Andrea hefur verið að gera áður á leiksviðinu. Hún segir að það sé fyrst og fremst skemmtilegt að vera brúðuleikari og hún hafi fengið góða þjálfun hjá hópnum.

„Ég er með grunn í sirkus, líkamlegu leikhúsi, trúðum og fleira í þeim dúr. Eftir að ég var ráðin var ég á námskeiði hjá þeim. Hver einasti vinnudagur byrjaði á klukkutíma námskeiði og svo unnum við með brúður allan daginn þangað til ég var orðin brúðuleikari,“ segir leikkonan Andrea Ösp Karlsdóttir sem hlakkar til að fá að kynna þetta verk fyrir Íslendingum. Brúðuleikhús fyrir fullorðna eru enn sem komið er ekki svo þekkt hér á landi miðað við víða erlendis en það á eflaust eftir að breytast með ferskum vindum!