Kynning fer fram á starfsemi Borgarbókasafnsins á víetnömsku á morgun, laugardag, kl. 13.
Kynning fer fram á starfsemi Borgarbókasafnsins á víetnömsku á morgun, laugardag, kl. 13. Samkvæmt upplýsingum safnsins býður það reglulega upp á kynningu á starfsemi safnsins á ýmsum tungumálum í samstarfi við einstaklinga og félög innflytjenda á landinu. Á meðan fullorðnir fá leiðsögn um safnið og upplýsingar um starfsemi þess á víetnömsku er boðið upp á sögustund og leiki fyrir börnin.