Kröfur Valur með kollega sínum Jóhanni Sigurjónssyni í versluninni TRI. „Fólk hefur oft lagt töluverða rannsóknarvinnu í valið á nýju reiðhjóli, lesið sér til á netinu og gert verðsamanburð á milli verslana og framleiðenda,“ segir hann. Um leið eru framleiðendur að þróa áhugaverðar nýjar útfærslur af hjólum.
Kröfur Valur með kollega sínum Jóhanni Sigurjónssyni í versluninni TRI. „Fólk hefur oft lagt töluverða rannsóknarvinnu í valið á nýju reiðhjóli, lesið sér til á netinu og gert verðsamanburð á milli verslana og framleiðenda,“ segir hann. Um leið eru framleiðendur að þróa áhugaverðar nýjar útfærslur af hjólum. — Morgunblaðið/Þórður
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Valur Rafn hefur ástæðu til að vera í góðu skapi þessa dagana enda einn besti sölutími ársins að ganga í garð hjá reiðhjólaversluninni TRI við Suðurlandsbraut.

Ásgeir Ingvarsson

ai@mbl.is

Valur Rafn hefur ástæðu til að vera í góðu skapi þessa dagana enda einn besti sölutími ársins að ganga í garð hjá reiðhjólaversluninni TRI við Suðurlandsbraut.

Valur er markaðsstjóri verslunarinnar en TRI hóf rekstur árið 2011. „Kveikjan að stofnun verslunarinnar var sú hugmynd að opna í fyrsta skipti búð hér á landi þar sem hægt væri að fá á einum stað allt sem þarf til að æfa og stunda þríþraut. Við seljum því vörur fyrir hlaupamanninn, sundmanninn og hjólreiðamanninn en hjólin eru í öndvegi og reiðhjól þýska framleiðandans Cube eru aðalsmerki verslunarinnar.“

Leggur Valur á það áherslu að úrvalið hjá TRI er fjölbreytt og m.a. hægt að finna þar reiðhjól af öllum tegundum, en ekki bara fyrir keppnisfólk í þríþraut. „Cube er mjög framsækið fyrirtæki, kemur inn á markaðinn fyrir aðeins tveimur áratugum, en er nú þegar orðið nokkuð þekkt og eftirsótt merki í reiðhjólaheiminum. Seljum við bæði keppnishjólin þeirra og einnig borgar- og fjallahjól, fyrir bæði karla, konur og börn. Ef eitthvert tiltekið hjól úr smiðju Cube er síðan ekki í sýningarsalnum þá er vitanlega sjálfsagt mál að panta hjólið til landsins.“

Að sögn Vals eru Cube-hjólin sambærileg við reiðhjól þekktustu og fremstu framleiðenda. „Þessi reiðhjól þykja vönduð smíði, létt og falleg, með úthugsaða hönnun og skemmtilegt litaval, til viðbótar við vandaðar bremsur og góða gíra.“

Allir að hjóla allsstaðar

Hefur reksturinn gengið vel undanfarin þrjú ár og ætti varla að koma á óvart enda hefur mikil sprenging orðið í hjólreiðum hér á landi. Bendir Valur raunar á að sama þróun sé að eiga sér stað í öllum helstu stórborgum vesturlanda. Um allan heim séu vinsældir hjólreiða að aukast og framleiðendur um leið að koma fram með nýjar lausnir og ný reiðhjól sem eiga að smellpassa við breytilegar þarfir reiðhjólafólks.

„Gott dæmi um þetta eru cyclocross-hjólin sem oft er lýst þannig að þau blandi saman í eitt eiginleikum fjallahjóls og götuhjóls. Annar nýr hópur reiðhjóla eru svokölluð hybrid-hjól sem blanda saman mjóum dekkjum keppnishjóla og þægilegri reiðstöðu borgarhjóla. Hlutverk reiðhjólasölumannsins hefur breyst í takt við þetta mikla úrval og fer vinnudagurinn bæði í það að mæla viðskiptavininn og finna hjól í hárréttri stærð, og að auki reyna að fá sem gleggsta mynd af því hvernig hjól hentar honum best. Er ætlunin að hjóla á stígum eingöngu? Þarf kannski að fara af malbikinu á leið í vinnu eða skóla og taka stuttan spöl á malarstíg? Þá finnum við hjólið sem hentar fullkomlega.“

Með blómlegri reiðhjólamenningu verða neytendur líka kröfuharðari og betur upplýstir um sérkenni ólíkra framleiðenda, og hvað gott reiðhjól verður að hafa til að bera. Valur segir marga sem leggja leið sína í verslunina vera með næmt auga fyrir smáatriðum á borð við gæði dempara eða bremsa, hvernig gjarðirnar eru smíðaðar eða jafnvel hvaða slöngur eru notaðar í dekkin. „Fólk hefur oft lagt töluverða rannsóknarvinnu í valið á nýju reiðhjóli, lesið sér til á netinu og gert verðsamanburð á milli verslana og framleiðenda.“

Feimin við sterka liti

Smekkur landans á reiðhjól og aukahluti fyrir reiðhjólið virðist líka vera að breytast. Reyndar segir Valur að Íslendingar sæki ennþá mest í reiðhjól sem eru svört eða grá að lit, og mættum við vera ófeimnari við að velja litríkari hjólhesta. „En það þykir t.d. orðið töff í dag að vera í hjólreiðabuxum og er það ánægjuleg þróun sem orðið hefur á mjög stuttum tíma. Eins þykir flott að vera með vandaðan hjálm á kollinum og heyrir í dag til algjörra undantekninga að sjáist til hjólreiðamanns á hraðskreiðu götuhjóli án þess að hann sé með hjálm til að vernda höfuðið“

Diskabremsur gjörbreyta hjólinu

Ein af greinilegustu breytingunum í smíði reiðhjóla á síðustu árum eru bremsurnar. Þeir sem vilja aðeins það besta sætta sig í dag ekki við annað en diskabremsur.

„Öll þekkjum við gömlu bremsurnar, svk. V-bremsur sem samanstanda af tveimur gúmmípúðum sem leggjast upp að felgunni og hægja þannig á hraðanum. Öll þekkjum við líka að slíkar bremsur eru oft ekki mjög góðar og þarf að gera ráð fyrir því við hjólreiðarnar að ekki sé hægt að snarstoppa. Eða hver man ekki eftir því sem barn að hafa ekki getað stólað á bremsurnar og vera búinn að spæna upp skóna eftir sumarið, við að reyna að hægja á.“

Diskabremsurnar eru svipaðar þeim sem notaðar eru í bílum og hemla svo vel að sögn Vals að þarf að vara fólk sérstaklega við þegar það sest í fyrsta skipti á reiðhjól með slíkum bremsum. „Hemlunarkrafturinn er svo mikill að ef ekki er farið varlega er það raunverulegur möguleiki að hjólreiðamaðurinn kastist af hjólinu.“

Hann segir að það taki samt ekki langan tíma að venjast breytingunni og þá verði upplifunin af því að hjóla allt önnur. Hjólreiðamaðurinn fái mun betra vald yfir hjólinu og það láti betur að stjórn. „Það er ekki hægt að líkja því saman að vera á hjóli með V-bremsu og diskabremsu. Hemlunarvegalengdir eru styttri og eiginleikar hjólsins verða allt aðrir.“