Ekki eftir bókinni. A-Allir
Norður | |
♠86 | |
♥KG72 | |
♦KD | |
♣KDG98 |
Vestur | Austur |
♠D7 | ♠KG1095 |
♥D109 | ♥Á |
♦87542 | ♦G963 |
♣765 | ♣Á32 |
Suður | |
♠Á432 | |
♥86543 | |
♦Á10 | |
♣104 |
Suður spilar 4♥.
Tromplitur sagnhafa er gamalkunnur: fimm hundar á móti KG fjórða. Ef aðeins má gefa einn slag á litinn er best að spila litlu á gosann í von um Dx eða ÁDx í millihönd. Samkvæmt fræðunum eru samanlagðar líkur á slíkri happalegu um 33%. Ekki mikið, en betra er ekki í boði.
Austur opnar á 1♠ og sú sögn gengur til norðurs, sem doblar til úttektar. Suður stekkur í 3♥ og norður lyftir í fjögur. Útspilið er ♠D og austur yfirtekur með kóng. Sagnhafi drepur, spilar trompi að blindum og vestur fylgir með níu. Á nú að setja gosann?
Nei, lítið hjarta! Fræðin eiga ekki við í þessu tilfelli. Ef vestur er með ♥Dx getur austur uppfært trompslag með því að spila spaða tvisvar og látið vestur stinga með millispili. Eina von sagnhafa er því ás BLANKUR í austur.