Viðræður Gunnar Bragi Sveinsson og Michel Barnier ræddu um EES.
Viðræður Gunnar Bragi Sveinsson og Michel Barnier ræddu um EES.
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Evrópusambandið er ákveðið í því að halda virkni samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

Ómar Friðriksson

omfr@mbl.is

Evrópusambandið er ákveðið í því að halda virkni samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Þetta kom fram í máli Michael Barnier, sem fer með málefni inni markaðarins í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, á fundi hans með Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra í fyrradag, samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins.

Barnier sagðist á fundinum með Gunnari Braga skilja stöðu Íslands vegna gjaldeyrishaftanna og vonast til þess að úr þeim leystist sem fyrst, að því er fram kemur í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins um fund Barniers og Gunnars Braga.

Einnig kom fram að Evrópusambandið væri tilbúið til samstarfs um lausn gjaldeyrishaftanna innan EES-samningsins.

„Samstarf ESB og EES-ríkjanna um innri markað og framkvæmd EES-samningsins er mikilvægt fyrir okkur öll. Í 20 ár hefur samningurinn verið okkur farsæll og einfaldað viðskipti innan Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins,“ er haft eftir Gunnari Braga eftir fundinn í tilkynningu ráðuneytisins.

Utanríkisráðherra fundaði einnig með Kristni Árnasyni framkvæmdastjóra Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, þar sem rætt var um stöðu fríverslunarsamninga hjá samtökunum. „Einnig fundaði Gunnar Bragi með Stine Andresen, framkvæmdastjóra uppbyggingarsjóðs EFTA. Kom fram mikil ánægja með verkefni sem Íslendingar hafa unnið að og þá sérstaklega mennta- og rannsóknastofnanir sem hafa tekið virkan þátt í starfi sjóðsins,“ segir ennfremur í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins í gær.