Litríkur Ben Frost heillaðist af litrófi ljósmyndanna sem Richard Fosse tók í Austur-Kongó á innrauðar filmur.
Litríkur Ben Frost heillaðist af litrófi ljósmyndanna sem Richard Fosse tók í Austur-Kongó á innrauðar filmur. — Ljósmynd/Börkur Sigþórsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hinn 26. maí næstkomandi gefur Bedroom Community-plötuútgáfan út sólóplötu með ástralska tónlistarmanninum Ben Frost sem nefnist A U R O R A.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Hinn 26. maí næstkomandi gefur Bedroom Community-plötuútgáfan út sólóplötu með ástralska tónlistarmanninum Ben Frost sem nefnist

A U R O R A. Síðasta sólóplata Frost, BY THE THROAT , kom út fyrir fimm árum og hlaut prýðilegar viðtökur innlendra sem erlendra gagnrýnenda. Hafa því eflaust margir beðið þeirrar nýju með eftirvæntingu en á henni eru flytjendur, auk Frost, þeir Shahzad Ismaily, Greg Fox og Thor Harris.

Í nýju ljósi

A U R O R A var tekin upp að miklu leyti í Austur-Kongó og leikur blaðamanni forvitni á að vita hvað Frost var að gera þar í landi. Frost segist hafa séð myndir sem ljósmyndarinn og myndlistarmaðurinn Richard Mosse tók í Austur-Kongó fyrir ljósmyndabók sína Infra , þegar hann var staddur í galleríi í New York. „Þetta var heimur sem ég hafði aldrei séð áður, hann var að nota gamlar innrauðar (e. infrared) filmur eins og voru notaðar í Víetnamstríðinu til að sýna hernaðarmannvirki í frumskógunum,“ segir Frost. Lifandi gróður verði rauður eða bleikur en ekki grænn en það sem sé grænt og kalt breyti ekki um lit, t.d. græn föt hermanna. Frost segir þessa aðferð Mosse sýna stríðið og átökin í landinu í allt öðru og nýju ljósi, litrófið allt annað en fólk eigi að venjast. „Þetta var sjónræn útgáfa af því sem mig langaði að gera í minni tónlist, þetta litróf,“ segir Frost. Hann hafi því haldið til Austur-Kongó á fund Mosse og dvalið með honum í frumskógunum þar. Hófst þá farsælt samstarf, Frost hannaði hljóð fyrir myndbandsverk Mosse, The Enclave , sem sýnt var á Feneyjatvíæringnum í fyrra og Mosse tók ljósmyndina sem prýðir umslag A U R O R A hér á landi með íslenskum aðstoðarmönnum, sem og myndband við tónlist Frost.

Innblásinn af hávaða Goma

Frost segist hafa samið tónlistina fyrir A U R O R A þegar hann vann með Mosse í Austur-Kongó. Frost dvaldi m.a. í borginni Goma, vann þar á fartölvu sína með heldur óöruggri rafmagnstengingu þar sem borgarbúar notast almennt við dísilknúnar rafstöðvar eða rafmótora. Hann segir það hafa verið heldur truflandi þar sem slíkar vélar séu afar háværar. Það hafi því ekki verið í boði að sinna listsköpun í ró og næði, hann hafi orðið fyrir stöðugum „hljómaárásum“. Blaðamaður spyr hvort ekki megi segja það sama um plötuna, að hún sé mikil hljómaárás og Frost tekur undir það. Þessi hávaði hafi haft mikil áhrif á hann.

„Ef þú gengur eftir „Laugaveginum“ í Goma klukkan tíu á föstudagskvöldi er hljóðheimurinn þannig að allir eru með mjög ódýr, kínversk hljómtæki í verslunum sínum með skelfilegum hljómi. Það sem gerir þetta mjög skrítið er að bakatil í verslununum er rafall sem býr til mikinn hávaða og til að yfirgnæfa hann þarf að stilla hljómtækin á hæsta styrk og hljóðið bjagast ótrúlega mikið við það,“ segir Frost. Þessi mikla hljómaárás sé í raun hluti af tónlistarmenningu borgarinnar.

Birta, ekki myrkur

Frost vonar að fólk upplifi tónlistina á plötunni ekki sem dimma eða myrka því hún snúist miklu fremur um ljós og birtu. „Ég tengi hana persónulega við allt litróf ljóssins, þetta er eins og sólin,“ segir Frost og segist þar ekki vera á krúttlegum nótum heldur eigi hann við sólina sem fyrirbæri, glóandi gashnött með sífelldum sprengingum. „Þaðan kemur nafnið á plötunni, allir tala um norðurljósin sem eitthvert góðkynja fyrirbæri eða draugalegt en þau eru það ekki, þetta eru miklar sprengingar sem eru dregnar niður til okkar frá sólinni,“ segir Frost og bætir því við að hann vilji þó ekki gera lítið úr fegurð norðurljósanna.

Frost verður önnum kafinn við tónleikahald í sumar, hélt í tónleikaferð í gær um Evrópu sem lýkur í Króatíu 24. maí. 29. maí heldur hann tónleika í Kanada, á MUTEK-raflistahátíðinni og hinn 12. júní treður hann upp á Sonar-hátíðinni í Barcelona sem hann segist hlakka mikið til. Degi síðar kemur hann fram í París og 11. júlí er svo komið að Íslandi, All Tomorrow's Parties á Ásbrú. Síðustu tónleikar Frost hér á landi fóru fram í þrengslum Kaffibarsins og segist Frost njóta þess að fara öfganna á milli þegar kemur að tónleikastöðum, spila á pínulitlum stöðum jafnt sem stórum sviðum.

Hvað næstu verkefni varðar segist Frost spenntur fyrir því að vinna tónlist fyrir væntanlega kvikmynd Barkar Sigþórssonar, verkefni sem hann fari í á þessu ári. „Ég fíla hann í botn,“ segir Frost um Börk. Þá stefni þeir Daníel Bjarnason að því að vinna frekar saman en þeir sendu fyrir þremur árum frá sér plötu með tónlist sem þeir sömdu innblásnir af kvikmynd Andrei Tarkovskíj, Solaris . „Fyrir utan það langar mig bara að vera heima og veiða,“ segir Frost og hlær og á þar við fluguveiði.

Eno og ópera

Frost er fæddur og uppalinn í Ástralíu en fluttist hingað til lands fyrir um tíu árum, kom hingað fyrst að heimsækja vin sinn, tónlistarmanninn Valgeir Sigurðsson, og heillaðist þá mjög af landi og þjóð, fékk tilfinningu fyrir því að hann væri kominn heim, eins og hann lýsir því sjálfur. Þeir Valgeir stofnuðu saman plötufyrirtækið Bedroom Community ásamt tónskáldinu Nico Muhly í því skyni að gefa út eigin tónlist og hefur Frost uppfrá því notið sífellt meiri athygli og virðingar í tónlistarheiminum. Hann var árið 2010 valinn af sjálfum Brian Eno í Protegé-verkefni fyrirtækisins Rolex, vann með Eno í eitt ár að tónlist og hefur unnið með tónlistarmönnum á borð við Colin Stetson og hljómsveitinni Swans, auk þess að semja tónlist fyrir kvikmyndir á borð við Sleeping Beauty og Djúpið . Þá samdi Frost og stýrði sinni fyrstu óperu, The Wasp Factory , í fyrra og var hún byggð á samnefndri skáldsögu Ian Banks.
Vefsíða Ben Frost: ethermachines.com www.bedroomcommunity.net www.richardmosse.com