Systkin Karen og Hermann eru náin.
Systkin Karen og Hermann eru náin.
Sérstök töfrasýning verður í Salnum í Kópavogi klukkan 19.30 í kvöld. Um fjölskyldusýningu er að ræða og fá áhorfendur að taka virkan þátt í sýningunni ef þeir vilja. Þar koma fram magnaðir töframenn og -konur.

Sérstök töfrasýning verður í Salnum í Kópavogi klukkan 19.30 í kvöld. Um fjölskyldusýningu er að ræða og fá áhorfendur að taka virkan þátt í sýningunni ef þeir vilja. Þar koma fram magnaðir töframenn og -konur. Meðal þeirra er Einar Míkael og Hermann Helenuson en hann vann keppnina Ísland Got Talent í vetur.

Sýningin er fjármögnuð með frjálsum framlögum sem renna beint til styrktar Karenar, litlu systur Hermanns en hún þarf að undirgangast stóra hryggaðgerð.