Hin kunna sópransöngkona Patricia Rozario verður heiðursgestur á tónleikum Kammerkórs Suðurlands á Listahátíð 24. maí næstkomandi.
Hin kunna sópransöngkona Patricia Rozario verður heiðursgestur á tónleikum Kammerkórs Suðurlands á Listahátíð 24. maí næstkomandi. Rozario hreifst af flutningi kórsins á verkum tónskáldsins Sir John Tavener í Lundúnum í nóvember og mál þróuðust þannig að hún mun syngja einsöng með kórnum í verkum eftir Tavener á tónleikunum hér. Rozario hefur frumflutt yfir 30 verk sem hann samdi sérstaklega fyrir hana.