Saman „Það er ekki nóg að setja sér markmið í heilsuræktinni og vinnunni, heldur verður maður líka að setja sér markmið fyrir fjölskylduna.“
Saman „Það er ekki nóg að setja sér markmið í heilsuræktinni og vinnunni, heldur verður maður líka að setja sér markmið fyrir fjölskylduna.“ — Morgunblaðið/Golli
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Jón Agnar Jónsson jonagnar@mbl.is Sumarið byrjar sumardaginn fyrsta, það er ekki flóknara en það.

Jón Agnar Jónsson

jonagnar@mbl.is

Sumarið byrjar sumardaginn fyrsta, það er ekki flóknara en það. Þá er grillið tekið út, hvernig sem viðrar, og þaðan í frá er sumarið í loftinu, hvernig sem viðrar,“ segir Logi Geirsson, fyrrverandi atvinnumaður í handbolta og núverandi eigandi Fjarform. Haft hefur verið á orði að Logi hafi verið í sannkölluðu sumarskapi á fésbókarsíðu sinni undanfarna daga og því rétt að taka hús á honum og inna hann eftir áformunum fyrir sumarið.

Landið skal sótt heim í sumar

Rétt eins og Logi reynir að temja skjólstæðingum sínum þann lífsstíl að setja sér markmið fyrir líkamsþjálfun sína, þá hefur hann sett sér skýr markmið fyrir það sem hann ætlar að gera í sumar. „Það er ekki nóg að setja sér markmið í heilsuræktinni og vinnunni, heldur verður maður líka að setja sér markmið fyrir fjölskylduna. Í stuttu máli ganga markmiðin út á það að ferðast saman um landið í sumar.“ Logi, unnusta hans, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, og sonur þeirra Vilberg ætla meðal annars að fara hringinn í kringum landið í sumar. „Margir eru alveg fastir á því að fara í sólina yfir hásumarið, sem er einmitt rétti tíminn til að fara um landið okkar. Til hvers að kaupa sér sólarlandaferð þegar hér heima nýtur sólar yfir nánast allan sólarhringinn yfir sumarið?“ spyr Logi og hlær við. „Hér heima er líka hægt að fara í útilegu án þess að vera étinn lifandi af moskítóflugum. Það er ótvíræður kostur.“

Aðspurður segir Logi að hann hafi ekki verið nægilega duglegur að sækja landið heim undanfarin ár. Þegar hann sneri heim eftir áralanga dvöl sem atvinnumaður í handbolta í Þýskalandi tók hann að eigin sögn törn í ferðalögum innanlands en síðan hefur faraldsfóturinn verið mestanpartinn í hvíld. „Svo tók ég reyndar ágætis skorpu þegar ég fór um landið við fyrirlestrahald, á árunum 2012 og 2013, og þá kom ég næstum á hvert einasta byggða ból á landinu, enda hélt ég hátt í fimmtíu fyrirlestra. Að því verkefni loknu sagði ég við konuna að við tvö þyrftum að fara hringinn saman. Og litli guttinn kemur með.“

Að búa til minningar

Ferðalög með fjölskyldunni eiga hug Loga allan um þessar mundir og hann hlakka til að leggja land undir fót í sumar. „Lífið snýst um að njóta augnabliksins með þeim sem manni þykir vænt um og búa þannig til minningar.“

Og hvað er betra en að búa til minningar með fjölskyldunni?

„Þegar maður lítur yfir það sem maður með upplifað og lent í, þá er það lærdómur sem ég hef dregið út úr lífinu. Maður er búinn að átta sig á að þetta snýst um að búa til minningar.“

Orð að sönnu. En hvers vegna er Logi svona sannfærður um að þetta verði frábært sumar?

„Ja, það verður ekki verra en síðasta sumar, svo miklu get ég lofað,“ segir Logi og hlær, með vísan í veðurfarið sem landsmenn hér fyrir sunnan upplifðu í fyrra þegar eiginlegt sumar kom aldrei að heitið gat. „Annars hef ég bara tilfinningu fyrir því að þetta verði gott sumar. Sjálfur er ég með mörg járn í eldinum og upplifi alltaf sumarið sem bjart og skemmtilegt. Ég er náttúrlega að þjálfa fólk árið um kring og þegar sumarið kemur er hægt að færa hluta þjálfunarinnar út fyrir hússins dyr, senda fólkið út á hlaupa, á fjöll og svo framvegis. Þá er prógrammið brotið skemmtilega upp og fyrir bragðið verður sumarið skemmtilegasti tíminn. Stundum þarf maður að bíða níu mánuði ársins eftir þremur góðum mánuðum svo það þýðir ekkert annað en að ákveða að þeir verði góðir,“ bætir Logi við.

Dálæti á Dyrhólaey

Einn er sá landshluti sem Logi hefur sérstakan augastað á fyrir sumarið. Það eru Vestfirðir. „Planið er að þræða firðina, heimsækja Rauðasand, Hornstrandir og fleiri fallega staði. Við ætlum okkur góðan tíma til að skoða okkur þar um. Af nægu er að taka fyrir vestan og ég hlakka mikið til að fara þar um og upplifa vestfirska náttúru.“

Uppáhaldsstaður Loga er aftur á móti Dyrhólaey og nágrenni. Þar hefur fjölskylda hans átt land um langan aldur og þar var okkar maður alinn upp á sumrin. Þar af leiðir að hann veit lengra nefi sínu þegar kemur að því að spá í veðrið. Byggt á því sem hann kann fyrir sér í þeim alþýðufræðum úr sveitinni, þá lofa öll teikn sem á lofti eru að sumarið verði gott. Það er auðheyrt að Logi kann að lesa í landið enda sveitastrákur inni við beinið.

„Þó að ég segi sjálfur frá þá er ég orðinn nokkuð lunkinn að sjá út hvernig sumarið verður,“ útskýrir Logi kankvís. Hann bætir við að veðurspádómsgáfan sé ekki síst komin frá sjálfum Guðjóni Þorsteinssyni í Garðakoti við Dyrhólaey, þeim hinum sama og Ragnar Axelsson, ljósmyndari hjá Morgunblaðinu, festi á filmu í magnaðri myndaröð fyrir um áratug. „Hann kenndi okkur krökkunum þetta þegar við röltum með honum á sandana, er við vorum í sveitinni á sumrin. Hann er auðvitað goðsögn þarna í sveitinni og lifir meðal fólksins þó að fallinn sé frá. Blessuð sé minning hans,“ bætir Logi við en Guðjón lést 22. janúar 2006, þá 82 ára að aldri. Með annan eins lærimeistara í veðurfræðum blasir við að mark hlýtur að vera takandi á orðum Loga.

„Fuglalífið og fleira felur í sér vísbendingar um að framundan sé gott sumar. Ég ætla því að leyfa mér að spá frábæru sumri þar sem landinn mun njóta lífsins.“

Gæfan gefi að þetta viti á gott sumar.