Skemmtun Skipin koma víða við.
Skemmtun Skipin koma víða við.
Tólf skemmtiferðaskip hafa viðkomu í Grímsey í sumar, þrefalt fleiri en á síðasta ári. Þótt skipin séu ekki meðal þeirra stærstu þarf að ferja farþegana í land með bátum svo þeir geti gengið norður fyrir heimskautsbaug.

Tólf skemmtiferðaskip hafa viðkomu í Grímsey í sumar, þrefalt fleiri en á síðasta ári. Þótt skipin séu ekki meðal þeirra stærstu þarf að ferja farþegana í land með bátum svo þeir geti gengið norður fyrir heimskautsbaug. Viðkomum skemmtiferðaskipa í höfnum Íslands fjölgar verulega frá síðasta ári. Þannig er reiknað með 89 komum skipa til Reykjavíkur á móti 80 á síðasta ári. Áætlað er að 98 þúsund farþegar verði á skipunum. 28