Kjartan Magnússon
Kjartan Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Kjartan Magnússon: "Komum vinstri meirihlutanum frá völdum og hefjum á ný framkvæmdir í þágu umferðaröryggis á stofnbrautum í Reykjavík."

Ekki eru mörg ár síðan borgarfulltrúar Samfylkingarinnar létu ekkert tækifæri ónotað til að gagnrýna ríkisvaldið fyrir að lítið fé rynni til vegamála í Reykjavík í samanburði við fjárveitingar til annarra kjördæma. Í ljósi þessarar gagnrýni bjuggust einhverjir við því að Samfylkingin myndi bæta myndarlega úr þegar hún sjálf kæmist í ríkisstjórn og jafnvel sjá til þess að Reykjavík fengi vegafé í samræmi við íbúafjölda.

Heggur sá er hlífa skyldi

Raunin varð önnur. Samfylkingin náði vissulega ríkisstjórninni í sínar hendur um sex ára skeið, frá 2007-2013. Þetta valdaskeið notaði Samfylkingin hins vegar til að knýja fram tíu ára stöðvun stórframkvæmda í samgöngumálum í höfuðborginni með dyggum stuðningi borgarfulltrúa Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna. Þessir flokkar beittu sér fyrir því að gerður var svokallaður samgöngusamningur milli ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem fól í sér að hætt var við allar stórar samgönguframkvæmdir í Reykjavík á árunum 2012-2022. Á sama tímabili munu hins vegar tugir milljarða renna til samgönguframkvæmda í öðrum kjördæmum landsins.

Helsti forvígismaður framkvæmdastoppsins var Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og þáverandi varaformaður flokksins á landsvísu. Maðurinn sem áður sparaði ekki stóryrðin í garð ríkisvaldsins fyrir að veita of lítið fé til samgönguframkvæmda í Reykjavík, beitti sér síðan fyrir 10 ára framkvæmdastoppi í Reykjavík. Umræddar samgönguframkvæmdir, sem vinstri flokkarnir stýrðu þannig frá Reykjavík, hefðu fækkað slysum í borginni og skapað þar umsvif og atvinnu.

Mikil arðsemi samgönguframkvæmda í Reykjavík

Ég hef gagnrýnt þennan samning frá upphafi og þá einkum í ljósi þess að hann seinkar því um tíu ár að ráðist verði í brýnar úrbætur í þágu umferðaröryggis á stofnbrautum í borginni. Auðvitað kosta slíkar öryggislausnir sitt en ekki er um það deilt að leitun er að arðsamari framkvæmdum en þeim að auka umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum þar sem alvarleg umferðarslys eru tíð. Rétt er að geta þess að í samningnum eru ákvæði um framlög til eflingar hjólreiðum og almenningssamgöngum, sem Sjálfstæðisflokkurinn styður að sjálfsögðu.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu til á borgarstjórnarfundi í síðustu viku að umræddur samgöngusamningur yrði endurskoðaður með það að markmiði að á samningstímabilinu yrði ráðist í stórframkvæmdir í samgöngumálum í Reykjavík með umferðaröryggi og arðsemi að leiðarljósi.

Borgarfulltrúar Samfylkingar og Bjartrar framtíðar lögðust gegn því að tillagan yrði borin upp til atkvæða á fundinum. Í umræðum um málið kom hins vegar skýrt fram að fulltrúar vinstri flokkanna vilja ekki endurskoða umræddan samning með það að markmiði að á samningstímabilinu verði ráðist í framkvæmdir á stofnbrautakerfinu í Reykjavík með umferðaröryggi og arðsemi að leiðarljósi.

Aukum umferðaröryggi allra vegfarenda

Reykvíkingar! Hnekkjum aðgerðaleysisstefnunni og hefjum á ný framkvæmdir í þágu umferðaröryggis á stofnbrautum í Reykjavík. Til þess þarf að koma borgarstjórnarmeirihluta vinstri manna frá völdum og kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Sem fyrr vill Sjálfstæðisflokkurinn að Reykvíkingar eigi val um ólíka samgöngukosti um leið og við bendum á að umræddar samgönguframkvæmdir munu stuðla að auknu umferðaröryggi allra vegfarenda, hvort sem þeir nota almenningssamgöngur, bifreiðar, hjól eða tvo jafnfljóta.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Höf.: Kjartan Magnússon