Lítill sóknarþungi. N-AV
Norður | |
♠K63 | |
♥10643 | |
♦Á105 | |
♣1094 |
Vestur | Austur |
♠D8 | ♠1054 |
♥KD | ♥Á8752 |
♦G94 | ♦K872 |
♣KG8753 | ♣D |
Suður | |
♠ÁG972 | |
♥G9 | |
♦D63 | |
♣Á62 |
Suður spilar 2♠.
Horfum til vesturs. Suður opnar í þriðju hendi á 1♠ og vestur passar. Það gerðu þeir báðir, Lettinn Ivars Rubenis og Húsvíkingurinn Magnús Eiður Magnússon, í æfingaleik um síðustu helgi. Norður lyfti í 2♠ – pass og pass til þeirra Ívars og Magga. Hvað nú?
Magnús passaði aftur. Taldi sóknarþungann lítinn, þrátt fyrir sexlit í laufi. Hann kom út með ♥K, tók annan slag á ♥D og skipti svo yfir í lauf. Sagnhafi dúkkaði ♣D og Þröstur Ingimarsson í austur spilaði litlu hjarta til baka. Suður henti laufi og Magnús trompaði með áttunni. Vörnin tók tvo slagi í viðbót á tromp – fyrst stakk Þröstur lauf og síðan fékk Magnús slag á ♠D með yfirstungu. Sjöundi varnarslagurinn fékkst á ♦K í fyllingu tímans. Tveir niður.
Ivars sagði 3♣ við hitt borðið og fór tvo niður á þeim samningi. Samtals 300-kall til Íslands og sjö stiga sveifla.