Marco Reus
Marco Reus
Þjóðverjar fóru illa með lið Armena í vináttulandsleik í gær og unnu þar öruggan 6:1 sigur. Andre Schürrle, Lukas Podolski, Benedikt Howedes og Miroslav Klose skoruðu fyrstu fjögur mörkin áður en Mario Götze gerði út um leikinn með tveimur mörkum.

Þjóðverjar fóru illa með lið Armena í vináttulandsleik í gær og unnu þar öruggan 6:1 sigur. Andre Schürrle, Lukas Podolski, Benedikt Howedes og Miroslav Klose skoruðu fyrstu fjögur mörkin áður en Mario Götze gerði út um leikinn með tveimur mörkum. Sigurinn var þó ekki bara gleðilegur því Marco Reus fór meiddur af velli og óvíst er um þátttöku hans á HM, en um meiðsli á ökkla er að ræða.

Brasilía vann svo nauman sigur á Serbíu, 1:0, en Fred skoraði sigurmark gestgjafanna. yrkill@mbl.is