TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Vitiði, ég ætlaði ekkert að hlusta á þessa nýju plötu White. Ákvað að nenna því ekki. Eina sólóplatan hans til þessa, Blunderbuss (2012), var ekki skemmtileg, hljómaði eins og afgangsefni og lítt innblásin að því er virtist. Þannig að ég ákvað að spara mér tíma. Svo fékk ég sms frá góðvini mínum í gær þar sem hann mærði Lazaretto , aðra sólóplötu White – sem út kemur á mánudaginn – og ég ákvað því að gefa henni eins og einn snúning, aðallega þá til að gefa vini mínum viðgjöf. Það sem átti svo að verða nokkur orð í sms-i snerist upp í heldur lengri tölvupóst þar sem ég lýsti yfir mikilli ánægju með þetta verk White. Ég átti ekki von á þessu. En vel gert, Jack. Þú átt skilið pistil.
Brokkgengur
Ég hef reyndar alltaf verið hrifinn af White og hans vinnu (og hann „vinnur“ mikil ósköp, sei sei já...) en ég teldist þó seint vera aðdáandi. Ég er meira forvitinn eða áhugasamur um þennan mann og hef alltaf annað augað (jafnvel eyrað) á því sem hann er að gera. Það er bara eitthvað við allan pakkann sem heillar; umslagshönnun, vinna hans með öðrum, hugmyndir hans og afstaða um hvernig beri að haga upptökum og útgáfum o.s.frv. Og tónlistin líka auðvitað, sem er þó brokkgeng á köflum. Raconteurs er t.d. snilld en Dead Weather ekki. White Stripes, jú, en ég er farinn að hallast að því að Get Behind Me Satan sé uppáhaldið mitt þar. Eldri plöturnar eru of einfaldar (ég tek við reiðipóstum í gegnum netfangið hér að ofan). Undanfarið hefur maður þó horft í mestri forundran á alla þá glæsilegu starfsemi sem White hefur verið að keyra í gegnum útgáfu sínu Third Man Records en sú athafnasemi öll er efni í heila grein. Ég þarf að einbeita mér að Lazaretto nú, þið verðið bara að „gúgla“ þetta. (Ég verð þó að nefna tvennt: White gefur út nýjustu plötu Neil Young, sem var tekin upp í Voice-o-Graph vínylupptökuklefa frá 1947 og sérstök vínylútgáfa af Lazaretto skartar m.a. heilmynd og rákirnar eru þannig að armurinn gengur út frá plötunni en ekki inn að miðju).