Þórhildur Skarphéðinsdóttir fæddist á Húsavík 10. desember 1921. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 13. maí 2014.
Útför Þórhildar fór fram frá Akureyrarkirkju 23. maí 2014.
Elsku amma mín, nú ertu loksins komin i hvíld og komin til afa. Þú áttir gott líf hér og við áttum góðar stundir saman, það er ómetanlegt að hafa setið hjá þér og haldið í höndina á þér á lokasprettinum, ég veit að afi og Ásta tóku vel á móti þér. Þökk fyrir allt elsku amma mín, ég hugsa alltaf til þín.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Auður Dagný Gunnarsdóttir.