Danny Green
Danny Green
San Antonio Spurs vinnur alltaf fyrsta leik sinn í úrslitaeinvígi NBA í körfubolta og það brást ekki í fyrrinótt. Spurs lagði þá meistara Miami Heat, 110:95, í fyrsta úrslitaleik liðanna á heimavelli sínum í Texas.

Frábær lokakafli liðsins þar sem það gerði 31 stig gegn níu tryggði sigurinn og á þeim kafla gerði Danny Green 11 stig. Tim Duncan skoraði 21 stig fyrir Spurs en LeBron James, sem fékk krampa í fjórða leikhluta og varð að hætta, skoraði 25 fyrir Miami. Liðin leika aftur í San Antonio annað kvöld. vs@mbl.is